Jón Ólafsson dæmdur til greiðslu milljóna bandaríkjadala

Bæði Jón Ólafsson og Baraka tengjast Icelandic Glacial í Ölfusi.
Bæði Jón Ólafsson og Baraka tengjast Icelandic Glacial í Ölfusi. mbl.is/Eyþór

Bandarískur dómstóll í New York hefur dæmt Jón Ólafsson og Baraka Investment Limited til að greiða Silvertip Capital samtals 3,1 milljón dollara, auk vaxta og kostnaðar. Þetta kemur fram í dómi sem kveðinn var upp 20. mars síðastliðinn.

Bæði Jón og Baraka Investment tengjast vatnsverksmiðjunni Icelandic Glacial í Ölfusi.

Málið snýst um skuldabréf sem Baraka og Jón ábyrgðust árið 2016. Silvertip Capital lagði félaginu til þrjár milljónir dollara. Seinna var samið um 100 þúsund dollara viðbótarframlag, þannig að heildarskuldin nam 3,1 milljón dollara. Jón virðist hafa verið í persónulegri ábyrgð fyrir greiðslu lánsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK