Hreiðar Már Hermannsson tók við forstjórastól fasteignafélagsins Eikar á dögunum.
Í viðtali við ViðskiptaMoggann lýsir hann sinni sýn á rekstur Eikar, reynslu sinni á fjármálamarkaði, skoðun sinni á skuldsetningu félagsins ásamt fleiru.
Þegar talið berst að skuldsetningu Eikar og framtíðarfjármögnun segir Hreiðar að rými sé fyrir aukna skuldsetningu. „Við höfum mjög fyrirsjáanlegt sjóðstreymi og getum nýtt vogunarhlutfallið betur,“ segir hann. Hann telur rétt að hluti af núverandi fjármagnsstöðu félagsins verði nýttur frekar til vaxtar eða útgreiðslu til hluthafa, fremur en að liggja óhreyfður.
Hins vegar leggur hann ríka áherslu á að halda fjármögnuninni stöðugri og öruggri. Hann vill lengja meðaltíma lána félagsins til að jafna endurfjármögnunaráhættu yfir tíma.
„Ég vil vera í stöðu þar sem aldrei meira en fimm prósent af skuldsetningu félagsins komi til endurfjármögnunar á einu ári,“ segir hann, og útskýrir að þannig verði hægt að viðhalda stöðugum vaxtakostnaði og skýrum rekstrarforsendum til framtíðar.
Hreiðar lýsir því einnig að hann sjái mikla möguleika í að nýta sterka stöðu Eikar gagnvart lífeyrissjóðum og fjárfestum með útgáfu skuldabréfa með lengri lánstíma. Hann er jákvæður gagnvart þróun vaxta á Íslandi og spáir lækkandi grunnvöxtum á næstu árum, sem gæti aukið verðmæti slíkra fjármögnunarleiða.
„Við erum ekki fyrirtæki sem tjaldar til einnar nætur. Við viljum byggja stöðugan rekstur og tryggja langtímasambönd við fjárfesta okkar, líkt og við viljum gera við viðskiptavini okkar.“
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.