Thor Landeldi lýkur 4 milljarða hlutafjáraukningu

F.v: Indriði Sigurðsson (Arctica Finance), Jón Þór Sigurvinsson (Arctica Finance), …
F.v: Indriði Sigurðsson (Arctica Finance), Jón Þór Sigurvinsson (Arctica Finance), Þórður Þórðarson (Thor), Kristrún Auður Viðarsdóttir (IS Haf), Vignir Stefánsson (Thor), Runólfur Viðar Guðmundsson (ÚR), Jónatan Þórðarson (Thor), Halldór Ragnar Gíslason (Thor), Brynjólfur Gísli Eyjólfsson (IS Haf), Gunnar Rúnar Gunnarsson (ÚR) Ljósmynd/Aðsend

Landeldisfyrirtækið Thor Landeldi, sem sérhæfir sig í landeldi á laxi, hefur lokið við 4 milljarða króna hlutafjáraukningu í lokuðu útboði.

Fram kemur í tilkynnningu fyrirtækisins að hlutafjáraukningin hafi verið leidd af IS Haf fjárfestingum og fjórum hluthöfum sjóðsins: Útgerðarfélagi Reykjavíkur, Birtu lífeyrissjóði, Lífeyrisþjónustu Íslandsbanka og Almenna lífeyrissjóðnum.

Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance annaðist umsjón hlutafjáraukningarinnar.

IS Haf fjárfestingar slhf. er sjóður sem stofnaður var í febrúar 2023 og er í rekstri Íslandssjóða hf. Sjóðurinn sem er 10 milljarðar króna að stærð fjárfestir í haftengdri starfsemi á breiðum grunni. Stærstu fjárfestar sjóðsins eru íslenskir lífeyrissjóðir ásamt Brimi hf. og Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. sem er kjölfestufjárfestir.

Byrja slátra laxi haustið 2027

Hlutafjáraukningin tryggir fjármögnun næsta áfanga hjá Thor landeldi sem snýr að uppbyggingu 4.750 tonna áframeldis við Þorlákshöfn. Von er á fyrstu slátrun á laxi haustið 2027. Um er að ræða annan áfanga af fjórum, en félagið áformar uppbyggingu á 20.000 tonna landeldi á laxi.

Fyrsta áfanga verkefnisins lýkur nú fyrir sumarið en hann er bygging á fullkominni seiðastöð sem annar seiðum fyrir allt að 20.000 tonna framleiðslu, ásamt viðamikilli undirbúningsvinnu í rannsóknum og leyfismálum fyrir verkefnið sem öll eru höfn.

Kristrún Auður Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri IS Haf fjárfestinga segir það ánægjulegt að framkvæmdir hefjist bráðum. „Það er mjög ánægjulegt að geta hafið framkvæmdir í byrjun sumars á fullfjármögnuðu áframeldi á laxi á sama tíma og seiðaeldisstöð félagsins hefur rekstur. Fagmennska við uppbyggingu seiðaeldisins og öflug samvinna sjóðsins og stofnenda hefur varðað veginn fyrir næstu áfanga Thor landeldis,“ segir Kristrún í tilkynningunni. 

„Við hjá ÚR sjáum Thor landeldi sem tækifæri til að styðja við sjálfbæra og hátæknivædda matvælaframleiðslu á Íslandi. Fjárfesting í landeldi er mikilvægt framlag til byggðar, atvinnulífs og vistvænnar framtíðar. Þróun landeldis er eitt af þeim sviðum þar sem Ísland getur orðið leiðandi á heimsvísu – og við viljum vera hluti af þeirri vegferð,“ segir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK