Margrét Tryggvadóttir forstjóri Nova er gestur í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna. Þar ræðir hún meðal annars rekstur félagsins, kaup Nova á 20% hlut í DineOut og fleira.
Á síðasta uppgjörsfundi Nova sagði Margrét að félagið horfði til ytri vaxtar. Spurð út í þau ummæli segir Margrét að ýmislegt sé í skoðun.
„Við höfum verið að skoða ýmislegt en við ætlum að vanda okkur og við höfum líka sagt að einn plús einn verði að vera þrír til að þetta gangi upp. Og ef við erum að fara út í eitthvað, að við getum nýtt styrkleika okkar og séð hvernig við gætum þá mögulega verið að bjóða viðskiptavinum meiri þjónustu,“ segir Margrét.
Hún segir að Nova sjái það skýrt að viðskiptavinir Nova séu reiðubúnir að borga fyrir meiri þjónustu frá fyrirtækinu.
Þannig að það eru ýmis tækifæri þarna, hvort sem það tengist grunnrekstrinum og styður við hann eða allt frá því að vera bara svolítið fjær. Og þarna höfum við bara horft á mismunandi markaði og við höfum ekki verið að gefa alveg upp hvað það er sem við horfum til,“ segir Margrét.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér: