Meðlimir stjórnar Tesla hafa vísað á bug frétt Wall Street Journal (WSJ) um að fyrirtækið hafi undanfarið leitað að nýjum forstjóra til að koma í stað Elons Musks.
Robyn Denholm stjórnarformaður Tesla sagði í yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X að stjórnin hefði fullkomið traust á Musk og sagði frétt WSJ kolranga.
Í frétt WSJ, sem birt var 1. maí, kom fram að stjórn Tesla hefði fyrir um mánuði leitað til ráðningarfyrirtækja til að finna eftirmann Musks, einkum vegna óánægju með aðkomu hans að ríkisstjórn Donalds Trumps. Þar gegnir Musk nú lykilhlutverki sem yfirmaður nýrrar stofnunar, Department of Government Efficiency (DOGE), sem á að skera niður ríkisútgjöld og hefur sannarlega verið umdeildur í því verkefni.
Tesla hefur mátt þola aukna gagnrýni frá hluthöfum vegna tengsla Musks við stjórnmál og aukna fjarveru hans frá daglegum rekstri fyrirtækisins. Þá hefur andstaða gegn Musk aukist í formi mótmæla og skemmdarverka við Tesla-stöðvar víða um Evrópu og Bandaríkin.
Samkvæmt heimildum WSJ hefur stjórnarmaðurinn JB Straubel átt fundi með stórum fjárfestum til að reyna að lægja öldurnar og styrkja trú á framtíðarsýn fyrirtækisins.
Robyn Denholm hefur áður verið gagnrýnd fyrir að vera of tengd Musk, meðal annars vegna aðkomu að umdeildri kaupréttaráætlun Musks. Sjálf virðist hún hafa selt Tesla-hlutabréf nýverið fyrir um 33,7 milljónir dollara, tæpa 4,5 milljarða króna.
Í öllu falli virðist stjórn Tesla með þessu senda skýr skilaboð um að Musk haldi áfram sem forstjóri og njóti til þess verkefnis stuðnings stjórnar. Spurningin er hvort Musk gefur sér tíma í verkefnið.