Bergey kaupir sögufrægt skrifstofuhúsnæði 

Fasteignafélagið Bergey hefur fest kaup á Digranesvegi 5 í Kópavogi.
Fasteignafélagið Bergey hefur fest kaup á Digranesvegi 5 í Kópavogi. Ljósmynd/Aðsend

Fasteignafélagið Bergey hefur fest kaup á 2.460 fermetra skrifstofuhúsnæði að Digranesvegi 5 í Kópavogi. Húsið, sem var reist árið 1974, hefur hýst margvíslegar opinberar og einkareknar stofnanir, þar á meðal Reiknistofu Bankanna, Útvegsbanka Íslands og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Byggingin er hönnuð af Gísla Halldórssyni og Teiknistofunni Ármúla 6, sem komu að mörgum þekktum opinberum byggingum hér á landi. Meðal annarra verka Gísla eru Tollhúsið í Reykjavík, Laugardalshöllin og Hótel Loftleiðir.

Kemur þetta fram í tilkynningu félagsins og þar er haft eftir Magnúsi Berg Magnússyni, stjórnarformanni Bergeyjar: 

„Við erum spennt að taka við þessari vel staðsettu viðbót í eignasafn Bergeyjar sem jafnframt verður okkar fyrsta fjárfesting í Kópavogi." 

„Húsið býr yfir ríkri sögu og hefur alla burði til að gegna mikilvægu hlutverki í þeirri umbreytingu sem nú er hafin á miðbæ Kópavogs.“

Bergey er fasteignafélag sem sérhæfir sig í þróun og fjárfestingu í atvinnuhúsnæði. Eignasafn félagsins er nú rúmlega 13.000 fermetrar og spannar verslunar- og þjónustuhúsnæði, hótel og iðnaðarhús á höfuðborgarsvæðinu.

Meðal verkefna eru umbreyting gömlu Mjólkurstöðvarinnar við Snorrabraut og nýleg kaup á Austurbæjarbíói.

Að félaginu standa fjárfestarnir Magnús Berg Magnússon, Torfi G. Yngvason og Jónas Pétur Ólason.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK