Alþjóðlega skrifstofukeðjan Regus hefur opnað nýja skrifstofuaðstöðu að Laugavegi 13 í Reykjavík, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Með flutningi sínum frá Hafnartorgi færist starfsemin í sögufrægt hús sem hannað var af Guðjóni Samúelssyni, einum þekktasta arkitekt Íslands, og verður nú miðpunktur fyrir nútímaleg vinnurými í hjarta borgarinnar.
Regus rekur alls 14 staðsetningar á Íslandi og yfir 7.000 á heimsvísu. Nýja staðsetningin við Laugaveg býður upp á fjölbreytta möguleika — allt frá sveigjanlegum skrifstofum til fundarherbergja og opinna vinnurýma.
„Við erum einstaklega stolt af þessari nýju staðsetningu. Hún samræmist framtíðarsýn Regus um að bjóða heildarþjónustu á háu þjónustustigi fyrir fyrirtæki og einkaaðila þar sem allt er innifalið og í meiri nánd við mannlífið. Viðskiptavinir okkar fá nú betra aðgengi, meiri nálægð við miðborgina og stofnanir, og ekki síst þá upplifun að vera hluti af borgarlífinu og að vera í þessu sögufræga húsi sem var hannað af Guðjóni sjálfum og hefur allt verið endurnýjað að innan ” segir Tómas Ragnarz hjá Regus. Meðal alþjóðlegra fyrirtækja sem nýta sér þjónustu Regus eru Spotify, FedEx, Microsoft, PayPal og UBER.