Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Samkaupa og Atlögu, áður Heimkaupa, en málið hefur verið til skoðunar síðustu mánuði. Eftirlitið hafði áður veitt félögunum heimild til að hefja undirbúning samrunans áður en endanlegt samþykki lægi fyrir.
Samruninn er mikilvægur áfangi í vaxtarstefnu Samkaupa og felur í sér áætlaðan 14% söluvöxt, auk þess sem sameinað verslunarnet félagsins telur nú 70 verslanir um land allt. Í kjölfarið hefst samþættingarvinna og aflétting síðustu fyrirvara.
Í tilkynningu félagsins kemur jafnframt fram að Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa, muni stíga til hliðar eftir yfir 20 ára starf hjá Samkaupum. Hann mun gegna starfinu þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.
Haft er eftir Gunnari Agli:
„Við sameiningu Samkaupa og Atlögu (Heimkaupa) tel ég hins vegar rétt að staldra við og meta eigin stöðu. Ég hef starfað hjá félaginu í yfir 20 ár og hef um hríð haft áhuga á að skoða önnur tækifæri. Ég hef því tilkynnt stjórnarformanni félagsins að ég hyggist stíga til hliðar sem forstjóri Samkaupa. Ég treysti sterku stjórnendateymi félagsins til að taka við keflinu og ég mun vinna með stjórn þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.“
Samkaup hefur á síðustu árum vaxið hratt og byggt upp vörumerki á borð við Nettó, Kjörbúðina og Krambúðina.