Viðlagakassinn kominn í sölu

Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum, og Ingunn Svala …
Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum, og Ingunn Svala Leifsdóttir, forstjóri Olís, með viðlagakassann.

Olís hefur hafið sölu á svonefndum viðlagakassa sem ætlaður er til að geyma nauðsynjavörur fyrir neyðartilvik, samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu. Kassinn er settur saman í samstarfi við Rauða krossinn og byggir á gátlista átaksins „3 dagar – Ertu klár?“ sem miðar að því að heimili landsins geti verið sjálfbær í a.m.k. þrjá daga, verði rafmagns- eða vatnsleysi.

Viðlagakassinn inniheldur m.a. handhægt útvarp sem einnig nýtist sem ljós og hleðslutæki, prímus og gashylki, skyndihjálpartösku, fjölnotaverkfæri, rafhlöður og kerti. Þá er áhersla lögð á að hver fjölskylda bæti við eigin þörfum eins og mat, lyfjum og hreinlætisvörum.

„Við erum stolt af því að taka þátt í þessu samfélagslega mikilvæga verkefni,“ segir Ingunn Svala Leifsdóttir, forstjóri Olís. Hagnaður af sölunni rennur til Rauða krossins.

„Það tapar enginn á því að vera vel undirbúinn,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum, og bætir við: 

„Við erum mjög þakklát fyrir þann stuðning sem Olís sýnir okkur með sölu á viðlagakassanum sínum,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum. „Útbreitt rafmagnsleysi sem varð um daginn á Spáni og í Portúgal hefur vakið fólk þar og víðar hressilega til umhugsunar um viðbragð sitt og viðbúnað og kannski ekki síst um hversu háð við erum rafmagni. Á 3dagar.is má sjá hugmyndir um hluti sem ættu að vera í viðlagakassa heimilisins, meðal annars hluti sem gera lífið bærilegra ef rafmagnið fer.

Kassinn kostar 18.900 krónur og fæst nú á Olís Norðlingaholti en verður innan skamms fáanlegur á öllum þjónustustöðvum Olís.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK