Forstjórabreytingin hefur engin áhrif á starfsemi Kerecis

Guðmundur Fertram Sigurjónsson er forstjóri Kerecis.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson er forstjóri Kerecis. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Danska lækningatæknifyrirtækið Coloplast tilkynnti í gær að forstjóri þess, Kristian Villumsen, hafi sagt starfi sínu lausu. Til að tryggja samfellu í rekstri mun stjórnarformaðurinn Lars Rasmussen, sem gegndi forstjórastöðu hjá Coloplast á árunum 2008 til 2018, taka við sem tímabundinn forstjóri. 

Kristian hefur starfað hjá Coloplast í 17 ár og gegnt forstjórastöðu frá 2018. Á hans stjórnartíð hefur fyrirtækið lagt áherslu á að stækka starfsemi sína á hávaxtarmörkuðum, meðal annars með kaupum á Atos Medical árið 2021 fyrir 2,5 milljarða dollara og íslenska fyrirtækinu Kerecis fyrir 1,3 milljarða dollara árið 2023. Þrátt fyrir árangur í nýjum rekstrareiningum hefur vöxtur í eldri einingum staðið í stað, sem hefur haft neikvæð áhrif á gengi hlutabréfa fyrirtækisins og talin ástæða starfsloka Kristians.

Stjórn Coloplast hefur tilkynnt að leit að nýjum forstjóra muni hefjast strax og er gert ráð fyrir að nýr forstjóri verði ráðinn innan 12 mánaða. Á meðan mun Lars vinna náið með framkvæmdastjórn til að tryggja stöðugleika og halda áfram með stefnumótun fyrirtækisins. 

Morgunblaðið leitaði til Guðmunds Fertrams Sigurjónssonar, forstjóra Kerecis, sem bendir á:

„Það er leiðinlegt að Kristian skuli vera hættur. Hann er afskaplega framsýnn stjórnandi eins og kaupin hans á Kerecis sýna. Stjórnarformaðurinn Lars Rasmussen tekur við og hlakka ég til að vinna með honum en hann auðvitað þekkir mjög vel til Kerecis og kynnti sér starfsemi Kerecis ítarlega þegar Coloplast var að skoða Kerecis og var svo einn af þeim sem tóku ákvörðunina um kaupin. Forstjórabreytingin hefur engin áhrif á starfsemi Kerecis og hlakka ég til að starfa áfram með starfsmönnum og viðskiptavinum Kerecis að áframhaldandi útbreiðslu sárroðsins frá Ísafirði.”

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er Guðmundur Fertram einn þeirra sem til greina kemur í stól forstjóra Coloplast. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK