Kvika banki tvöfaldar hagnað á fyrsta ársfjórðungi

Ármann Þorvaldsson er forstjóri Kviku banka.
Ármann Þorvaldsson er forstjóri Kviku banka. Morgunblaðið/Eggert

Kvika banki hf. skilaði 2.086 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2025, samanborið við 1.083 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta jafngildir tæplega 93% aukningu milli ára. Leiðréttur hagnaður fyrir skatta, án einskiptisliða, nam 1.590 milljónum króna og jókst um 31% frá sama tímabili í fyrra.

Sala TM trygginga hf. til Landsbankans skilaði Kviku um 32,3 milljörðum króna. Hluti söluandvirðisins var greiddur út til hluthafa í formi arðgreiðslu og kaupa á eigin hlutabréfum, en verulegur hluti var nýttur til að styrkja eiginfjárstöðu bankans.

Hreinar vaxtatekjur námu 2.917 milljónum króna, sem er 25,4% aukning frá fyrra ári. Vaxtamunur hækkaði á milli ára, úr 3,8% í 4,4%, sem skýrist meðal annars af stækkun lánasafns, lækkun fjármagnskostnaðar og tímabundinni aukningu lausafjár í kjölfar sölu TM. Hreinar þóknanatekjur lækkuðu hins vegar um 6,9%, aðallega vegna kostnaðarliða tengdra sölunni á TM.

Meðal einskiptisliða sem höfðu áhrif á uppgjörið var virðisrýrnun upp á 580 milljónir króna í tengslum við kaup Kviku á eftirstandandi 19,7% hlut í Ortus Secured Finance í Bretlandi. Með þessum kaupum eignaðist Kvika allt hlutafé í félaginu og hyggst samþætta starfsemi sína í Bretlandi frekar. Gert er ráð fyrir að þessi samþjöppun skili sér í lægri rekstrarkostnaði og auknu svigrúmi til vaxtar á markaðnum þar.

Í lok mars 2025 námu heildareignir bankans 343 milljörðum króna og eigið fé 68 milljörðum, samanborið við 90 milljarða í lok árs 2024. Lækkunin skýrist fyrst og fremst af arðgreiðslu sem samþykkt var í mars en greidd út í apríl. Eiginfjárhlutfall bankans var 23,0% og lausafjárhlutfall 279%.

Í tilkynningu frá bankanum segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku meðal annars:

„Rekstur bankans gekk vel á fyrsta ársfjórðungi, að teknu tilliti til einskiptisliða […] Gengið var endanlega frá sölu á tryggingafélaginu TM til Landsbankans […] Verulegur hlutur situr hins vegar eftir sem eigið fé í bankanum og mun leggja grunninn að vexti bankans á næstu árum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK