Sýn tapar 344 milljónum króna

Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar.
Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar.

Tap fjölmiðla og fjarskiptafyrirtækisins Sýnar eftir skatta nam 344 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins samanborið við 153 milljóna króna tap á sama tímabili 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Rekstrartekjur samstæðunnar námu 5.220 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við 5.365 milljónum króna á sama tímabili 2024 og dragast saman um 2,7%.

Fram kemur að jákvæð þróun hafi hins vegar í kjarnastarfsemi fjarskipta, þar sem bæði tekjur og fjöldi viðskiptavina aukast á milli ársfjórðunga. Þá hafa tekjur af Stöð 2+ einnig aukist og fjöldi áskrifenda hefur aldrei verið meiri. Auglýsingatekjur lækkuðu um 110 m.kr. milli fyrsta ársfjórðungs 2025 og sama tímabils 2024. Hluti skýrist af einskiptistekjum á fyrra tímabili, en aðalástæðan er umfangsmiklar breytingar á skipulagi einingarinnar til að styrkja reksturinn til framtíðar. Auk þess er samdráttur í reikitekjum vegna lækkunar á tekjum af erlendum ferðamönnum að því er fram kemur í tilkynningu.

EBITDAaL nam 582 milljónum króna á fjórðungnum, samanborið við 750 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2024. Til viðbótar við ofangreinda liði var eignfærsla á launakostnaði á tímabilinu 86 m.kr. lægri en á sama tímabili í fyrra.

Fjárfestingar námu 479 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025, samanborið við 943 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Lækkunin skýrist einkum af minni eignfærslu launakostnaðar og því að stórt innleiðingarverkefni var í gangi á sama tímabili árið 2024. Þá vegur einnig inn að sýningaréttargreiðslur dreifast öðruvísi á almanaksárið að þessu sinni með stærri hluta kostnaðar síðar á árinu, einkum vegna Enska boltans.

EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 102 milljónir króna á ársfjórðungnum samanborið við -193 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.

Rekstrartap (EBIT) nam 139 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við 47 milljóna króna rekstrarhagnað á sama tímabili 2024 og er í takti við áætlanir félagsins.

Afkomuspá félagsins er óbreytt og er gert ráð fyrir að EBIT ársins 2025 verði á bilinu 800-1.200 milljónir króna. Félagið birtir nú samhliða ársfjórðungsuppgjörinu umfangsmeiri afkomuspá fyrir árið 2025.

Haft er eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar í tilkynningu að afkoma fyrsta ársfjórðungs 2025 sé í samræmi við áætlanir og endurspegli bæði áframhaldandi aðlögun að krefjandi markaðsaðstæðum og þá stefnu félagsins að byggja upp sjálfbæran og arðbæran rekstur til framtíðar.

Líkt og áður hefur komið fram, gerðum við ráð fyrir kostnaðarþunga vegna innleiðingar nýrrar stefnu, og gert er ráð fyrir að annar ársfjórðungur verði einnig þungur i kostnaði áður en við njótum fulls rekstrarlegs ávinnings af þeim breytingum sem við höfum ráðist í," er haft eftir Herdísi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK