Kári S. Friðriksson, hagfræðingur í Arion greiningu, var gestur í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna en efnahagsmálin voru til umræðu.
Spurður hvaða áhrif það myndi hafa á íslenskan efnahag ef Donald Trump Bandaríkjaforseti setti á tolla eins og verið hefur til umræðu segir Kári að áhrifin á Ísland yrðu líklega ekki jafnmikil og talið hefur verið.
„Það er þó mikil óvissa í kringum þetta. Ella mun þetta hafa áhrif á framleiðslukostnað á innflutningsvörum. En það er ekki víst að það muni skila sér endilega hingað í svo miklum mæli og það er mjög auðvelt að teikna upp sviðsmynd þar sem það hefur áhrif til lækkunar á verðbólgu. Til dæmis núna þegar dollarinn hefur verið að veikjast, þannig að vörur sem við flytjum inn frá Bandaríkjunum eru ódýrari. Olíuverð hefur verið að lækka. Kínverjar geta ekki lengur flutt inn til Bandaríkjanna, mögulega þurfa þeir að lækka verð til að koma þeim annað, til dæmis til Evrópu,“ segir Kári og bendir á að vöruverð þaðan gæti lækkað.
„Þannig að auðvitað eru ýmis slæm áhrif og hagfræðingar eru flestallir sammála um það að tollar hafi neikvæð efnahagsleg áhrif. En í stóra samhenginu, jafnvel ef allt fer á versta veg, þá væri það ekki nóg til að valda samdrætti hérna,“ bætir hann við.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér: