Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu tæknitorgs

Ingunn Sigurpálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Auðnu tæknitorgs.
Ingunn Sigurpálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Auðnu tæknitorgs. Ljósmynd/Aðsend

Auðna tæknitorg hefur ráðið Ingunni Sigurpálsdóttur í starf framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hún tekur við starfinu af Einar Mäntylä.

Segir í tilkynningu að Ingunn hafi þegar hafið störf og mun leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun starfsemi Auðnu í íslensku nýsköpunar- og rannsóknarumhverfi, með því að aðstoða háskóla- og vísindasamfélagið við skil á uppfinningum og hagnýtanlegum rannsóknarniðurstöðum. 

Ingunn starfaði áður sem markaðs- og fjármálstjóri Auðnu og býr fyrir víðtækri þekkingu og fjölbreyttri reynslu af stjórnun, markaðsstarfi og fjármálum úr íslensku atvinnulífi.

Hún er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess styrkt þekkingu sína með sérhæfðum námskeiðum í verkefnastjórnun, stafrænum markaðsmálum og viðburðastjórnun. 

„Það er bæði mikill heiður og spennandi áskorun að taka við starfi framkvæmdastjóra Auðnu tæknitorgs. Félagið hefur á undanförnum árum byggt upp mikilvæga innviði sem styðja við nýsköpun á Íslandi og ég hlakka til að vinna með frábæru teymi og samstarfsaðilum til að efla þetta starf enn frekar,“ er haft eftir Ingunni í tilkynningunni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK