Íslandsbanki skilaði 5,2 milljarða króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi 2025, samkvæmt uppgjöri sem bankinn birti í dag. Hagnaðurinn er 4% minni en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam 5,4 milljörðum króna, en rúmlega 3% yfir meðaltali væntinga greiningaraðila.
Heildartekjur bankans námu 15,5 milljörðum króna. Vaxtatekjur voru 12,9 milljarðar og jukust um 7% á milli ára, samhliða því sem vaxtamunur jókst í 3,2% úr 3,0%, sem bendir til bættrar afkomu í kjarnastarfsemi bankans. Þóknanatekjur hækkuðu um 2% í 3,1 milljarð.
Hins vegar lækkuðu fjárfestingartekjur umtalsvert sem hafði áhrif á heildarhagnað. Aðrar tekjur, meðal annars vegna endurmats á Kirkjusandi 2, námu 467 milljónum króna.
Rekstrargjöld námu 7,9 milljörðum króna og hækkuðu um 4% milli ára. Þar af jókst launakostnaður um 8%, en annar rekstrarkostnaður lækkaði lítillega. Kostnaðarhlutfall, hlutfall rekstrarkostnaðar af tekjum, var 47,6%, sem er yfir langtímamarkmiði bankans sem er 45%. Arðsemi eigin fjár var 9,4%, einnig undir markmiði sem er yfir 10%.
Útlán til viðskiptavina námu 1.299 milljörðum króna í lok mars og hækkuðu um 0,3% frá áramótum. Ný lán námu um 48 milljörðum króna á fjórðungnum. Innlán frá viðskiptavinum hækkuðu um 1,1% og voru 937 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall lækkaði úr 23,2% í 21,6%, en er áfram vel yfir regluverkskröfum.
Í mars gaf bankinn út græn skuldabréf að andvirði 300 milljóna evra með 5,5 ára líftíma. Skuldabréfið hlaut umframeftirspurn og er það lengsta skuldabréf sem bankinn hefur gefið út síðan 2018.
Jón Guðni Ómarsson, forstjóri Íslandsbanka, sagði í kynningu vegna uppgjörsins meðal annars að óvissa á alþjóðlegum mörkuðum, sérstaklega vegna boðaðra tolla í Bandaríkjunum, hafi dregið úr fjárfestingartekjum á fjórðungnum. Bankastjórinn benti einnig á að óvissan hafi haft áhrif á hlutabréfamarkaðinn og lækkaði arðgreiðsluleiðrétt úrvalsvísitala OMX Iceland 15 um 7,7% á fyrsta ársfjórðungi. Einnig benti hann á að stafræn þróun héldi áfram með aukinni notkun á nýrri appútgáfu bankans og samstarfi við VÍS um dreifingu trygginga.