Ormsson og HTH opna nýja verslun

Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Ormsson (til hægri) og Matthías Ólafsson, …
Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Ormsson (til hægri) og Matthías Ólafsson, verslunarstjóri Ormsson á Norðurtorgi (til vinstri).

Ný verslun Ormsson og HTH opnaði í dag, í verslunarkjarnanum Norðurtorgi á Akureyri, skv. fréttatilkynningu. Þar koma saman innréttingar frá danska framleiðandanum HTH og fjölbreytt úrval raftækja frá helstu vörumerkjum.

„Þetta hefur gengið vonum framar,“ segir Kjartan Sigurðsson, forstjóri Ormsson. „Að sjálfsögðu er mikil vinna að baki og að mörgu að huga þegar kemur að svona stóru verkefni en við erum afar sátt með útkomuna og hlökkum til að frumsýna nýju verslunina.“

HTH innréttingar verða nú í fyrsta sinn aðgengilegar á Norðurlandi og að sögn Kjartans eru miklar væntingar bundnar við nýja sýningarsalinn. „Við erum afar spennt að bjóða Norðlendinga velkomna í nýja sýningarsalinn,“ bætir hann við.

Í tilefni opnunarinnar verður haldin sérstök opnunarhátíð dagana 8.–11. maí. Þar verður boðið upp á fjölbreytt opnunartilboð og léttar veitingar, nýbakaðar vöfflur og kaffi fyrir gesti á öllum aldri og ís fyrir börnin.

Einnig verður sett upp myndlistarsýning með verkum eftir listamanninn Ella Egils og hægt verður að taka þátt í happdrætti þar sem meðal annars er hægt að vinna HTH eldhúsinnréttingu að verðmæti allt að 1,5 milljónir króna, 50" Samsung Frame sjónvarp, Nutribullet blandara og fleiri vinninga.

„Það verður nóg um að vera í tilefni opnunarinnar,“ segir Hjalti Jónsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Ormsson og HTH. Hann bendir einnig á að fyrir tölvuleikjaunnendur verði haldin Mario Kart 8 keppni í nýju leikjarými verslunarinnar þar sem sigurvegarinn fær glænýja Nintendo Switch 2 leikjatölvu í verðlaun.

Verslunin verður opin frá kl. 10–18 á fimmtudag og föstudag, en frá kl. 11–16 um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK