WW International, áður þekkt sem WeightWatchers, hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum samkvæmt kafla 11 í Bandaríkjunum. Kafli 11 veitir fyrirtækjum tímabundna lagalega vernd gegn kröfuhöfum á meðan þau vinna að samþykktri endurskipulagningu. WW hyggst nýta þetta ferli til að styrkja fjárhagsstöðu sína en félagið áætlar að ljúka ferlinu innan 45 daga.
Samkvæmt yfirlýsingu forstjórans, Tara Comonte, sem tók við stjórnartaumunum árið 2024, mun þessi aðgerð skapa svigrúm til að hraða nauðsynlegri nýsköpun, þróa þjónustu tengda heilsu og þyngdarstjórnun og fjárfesta áfram í meðlimum fyrirtækisins. Hún segir reksturinn halda áfram á meðan á ferlinu stendur og að um 72% lánveitenda hafi nú þegar lýst yfir stuðningi við áætlunina.
Félagið er að burðast með um 1,5 milljarða dala í skuldir.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.