Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur greint frá því að stefnt sé að því að ljúka sölunni á Íslandsbanka á næstu vikum. Hann hefur sagt að þegar komið verði að sölunni muni íslenskur almenningur njóta forgangs. Síðan kemur röðin að öðrum innlendum fjárfestum og þar á eftir erlendum.
Samkvæmt upplýsingum fjármála- og efnahagsráðuneytisins hafa Barclays, Citi og Kvika verið ráðin til að vera umsjónaraðilar í fyrirhuguðu útboði ríkisins, en leitað er fleiri aðila.
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka hefur síðan verið ráðin til að vera sjálfstæður efnahagsráðgjafi ráðuneytisins.
Alexander Jensen Hjálmarsson, greinandi hjá AKKUR – Greining og ráðgjöf, segir að tímasetning sölunnar sé fín eins og staðan sé núna. Hlutirnir geti þó breyst fljótt.
„Tímasetningin er góð bæði upp á að fá inn erlenda aðila og innlendir aðilar hafa verið að búa sig undir söluna í einhvern tíma. Það er nóg til af fjármunum á hliðarlínunni auk þess sem fyrirtækin hafa verið að skila töluverðum fjármunum til hluthafa,“ segir Alexander.
Hann bætir við að það geti verið tækifæri í þeim markaðsaðstæðum sem hafa verið undanfarið sem einkennast af lækkunum, sveiflum og óvissu.
„Það geta verið tækifæri í því að markaðurinn hafi ekki verið góður, hlutabréfaverð hefur lækkað sem getur þýtt meiri tækifæri til lengri tíma fyrir fjárfesta,“ segir Alexander.
Spurður hvernig sú leið sem stjórnvöld hafa valið að fara þegar kemur að útboðinu horfi við honum, segir Alexander að leiðin sé fín ef ætlunin er að fara í almennt útboð.
„Það er meiri kostnaður og hærra flækjustig að fara í almennt útboð heldur en hraðaða tilboðsleið sem valin var síðast. C-bókin sem hefur verið kynnt býður þó upp á ýmsa möguleika. Með henni er hægt að fá stærri aðila að borðinu,“ segir Alexander.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.