Vöruviðskiptajöfnuður neikvæður um 53,4 milljarða í apríl

Vöruviðskiptajöfnuður landsins var neikvæður um 53,4 milljarða króna í apríl …
Vöruviðskiptajöfnuður landsins var neikvæður um 53,4 milljarða króna í apríl 2025 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Bráðabirgðatölur Hagstofu Íslands sýna að vöruviðskiptajöfnuður landsins var neikvæður um 53,4 milljarða króna í apríl 2025. Útflutningur nam 82,3 milljörðum króna, en innflutningur 135,7 milljörðum.

Útflutningur jókst um 13% frá apríl í fyrra, aðallega vegna aukins útflutnings iðnaðarvara, sem stóðu undir 55% af heildarútflutningi. Innflutningur jókst einnig um 13%, að verulegu leyti vegna mikils innflutnings á fjárfestingarvörum – þar á meðal tölvuvara sem tengjast starfsemi gagnavera á Íslandi.

Á tólf mánaða tímabili var vöruviðskiptahallinn samtals 437,2 milljarðar króna, sem er aukning um 39,7 milljarða frá sama tímabili ári fyrr. Gengi krónunnar styrktist um 4,8% í apríl, sem getur haft áhrif á verðlagningu bæði útflutnings og innflutnings á næstu misserum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK