Pipar\TBWA fjárfestir í gervigreindartólinu Aida Social

Undirritun samningsins, Oyvind Harjo forstjóri Aida, Kristján Hauksson Nordic Strategy …
Undirritun samningsins, Oyvind Harjo forstjóri Aida, Kristján Hauksson Nordic Strategy Director Ceedr, Guðmundur Pálsson framkvæmdarstjóri PiparTBWA og Suzann Webb hjá Aida. Ljósmynd/Aðsend

Auglýsingastofan Pipar\TBWA hefur fest kaup á hlut í norsk-breska hugbúnaðarfyrirtækinu Aida Social, sem þróar gervigreindarkerfi fyrir markaðs- og efnissköpun.

Aida er hannað til að styðja við fyrirtæki og markaðsteymi við daglega efnissköpun, allt frá samfélagsmiðlaefni og greinum til fréttabréfa og almannatengsla. Lausnin sameinar hönnun, sjálfvirkni og stefnumótun í einu kerfi og notar gervigreind, sem lærir orðræðu og útlitshönnun viðskiptavina til að tryggja samræmi í allri miðlun.

„Aida hefur vakið mikla athygli og er eitt mest spennandi kerfi fyrir efnissköpun og utanumhald í Evrópu,“ segir Guðmundur Pálsson, framkvæmdastjóri Pipars\TBWA í tilkynningu. Hann segir að fjárfestingin sé liður í áframhaldandi framtíðarsýn stofunnar um að vera leiðandi í stafrænum lausnum og nýsköpun. „Við teljum að Aida muni skipta miklu máli fyrir okkur og viðskiptavini okkar á næstu árum,“ bætir hann við.

Suzann Webb, stefnumótandi hjá Aida, fagnar aðkomu Pipars og systurfélaga þess í Skandinavíu að þróun fyrirtækisins. Hún segir að samstarfið muni styðja við vöxt Aida þvert á markaði og tungumál.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK