Steindór Arnar Jónsson hefur verið ráðinn tæknistjóri hjá IDS á Íslandi, sem veitir heildarlausnir í hugbúnaði og vélbúnaði fyrir gagnaver. Steindór kemur til IDS frá Íslenskri erfðagreiningu þar sem hann var forstöðumaður upplýsingatækni, en áður starfaði hann í rúman áratug hjá Advania. Hann er rafmagnstæknifræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík.
Guðbrandur Randver Sigurðsson, framkvæmdastjóri IDS, segir í tilkynningu ráðninguna mikilvæg skref í vexti fyrirtækisins: „Við lögðum mikla áherslu á að fá Steindór til liðs við okkur. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann á að baki um tuttugu ára reynslu í upplýsingatækni og sérþekkingu á gagnaverarekstri og skýjalausnum.“
IDS á Íslandi, sem fagnar ársafmæli næsta haust, er með höfuðstöðvar á Selfossi og starfsstöð í Reykjavík. Fyrirtækið er í eigu sænska upplýsingatæknifyrirtækisins Hexatronic.