Evrópska einkaleyfastofan (EPO) heldur verðlaunaafhendingu, Young Inventors Prize, í Hörpu þann 18. júní kl. 16:00. Tíu ungir frumkvöðlar undir 30 ára aldri verða heiðraðir fyrir nýsköpun sem stuðlar að sjálfbærari framtíð í anda þróunarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Í tilkynningu kemur fram að verkefnin varði meðal annars kolefnisföngun frá skipum, endurvinnslu sjaldgæfra efna, snjallmerki gegn matarsóun og lausnir við rafrænan úrgang. Þátttakendur koma víðsvegar að úr heiminum og voru valdir úr rúmlega 450 umsóknum.
Verðlaunaafhendingunni verður streymt í beinni útsendingu á netinu og er öllum opin. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verðlaun eru veitt við sérstaka viðhöfn. Áður hafa þau verið veitt á verðlaunaafhendingu Nýsköpunarverðlauna Evrópu (European Inventor Award). Frá og með viðhöfninni í Hörpu verður þetta sérstök athöfn, haldin annað hvert ár.