EVE Online er sérstakt hagkerfi

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP, segir ýmislegt á döfinni …
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP, segir ýmislegt á döfinni hjá fyrirtækinu. Ljósmynd/Aðsend

Helsta áskorun tölvuleikjafyrirtækisins CCP er ekki vöxtur, heldur samkeppni. Þetta segir Hilmar Veigar Pétursson framkvæmdastjóri CCP í samtali við ViðskiptaMoggann.

Hann lýsir því að tölvuleikjamarkaðurinn sé mettaður, með ótrúlega miklu magni nýrra leikja sem birtast bæði á hefðbundnum leikjaveitum og á farsímavettvangi. „Það eru yfir 100.000 leikir á Steam,“ segir Hilmar.

„Og þegar kemur að snjallsímaforritum, þá eru gefin út hundruð nýrra leikja á hverjum einasta degi.“

Tölvuáhuginn kviknaði snemma

Hilmar er fæddur í Kópavogi en ólst upp í Garðabæ. Hann lærði tölvunarfræði í Háskóla Íslands og hóf störf í hugbúnaðargeiranum árið 1996 hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Oz. Þar vann hann við að þróa hugbúnaðarlausnir, líkt og margir aðrir í bransanum á þeim tíma. Í byrjun árs 2000 tók hann við starfi tæknistjóra hjá CCP, en fjórum árum síðar, í mars 2004, varð hann framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Í mars á þessu ári fagnaði hann 25 ára starfsafmæli hjá CCP.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK