Þegar kemur að framtíðarvexti, þá horfir CCP aðallega til innri vaxtar. Hilmar Veigar Pétursson segir í samtali við ViðskiptaMoggann að nú séu þeir að leggja lokahönd á þrjá mjög umfangsmikla leiki sem hafi verið í vinnslu um langt skeið – og það skipti öllu máli hvernig þeim verði tekið á markaði. Samrunar og yfirtökur séu ekki í kortunum að svo stöddu. „Við sjáum okkur aðallega vaxa með okkar eigin verkefnum,“ segir hann.
Hilmar lýsir einnig stolti yfir íslenskum leikjaiðnaði og þeirri þróun sem orðið hefur á síðustu árum. Hann segir CCP hafa stutt við ýmis ný sprotafyrirtæki í upphafi og að það gleðji hann að sjá árangur þeirra. Hann nefnir sérstaklega fyrirtækin 1939 Games, Aldin, og Mainframe sem dæmi um fyrirtæki sem eru að gera góða hluti og hafi náð mikilli velgengni undanfarið. „Við trúum því að því fleiri góð fyrirtæki sem verða til á Íslandi, þeim mun meira lyftist allur geirinn.“
Næstu mánuðir eru stórir hjá CCP. Fram undan eru umfangsmikil markaðsátök fyrir þrjú ný stórverkefni: „Það eru þessir níu leikir komnir í gang, þannig að það má alveg marka að nú sé farið að hitna verulega í kolunum,“ segir Hilmar. Sjálfur sé hann á leið í flug til Lundúna í maí til að taka þátt í röð alþjóðlegra fjölmiðla- og kynningarviðburða.
Mikil vinna sé fram undan í tengslum við kynningar og útgáfustarfsemi fyrir nýju leikina, ekki síst fyrir EVE Frontier og EVE Vanguard. „Það verður mikið markaðsbrölt hjá okkur næstu tvö árin,“ segir hann.
Markaðssetning tölvuleikja fer að miklu leyti eftir vettvangi. Farsímaleikir eins og nýlegi Galaxy krefjast auglýsinga á samfélagsmiðlum og jafnvel innan annarra leikja, en þegar kemur að PC-leikjum eins og EVE Frontier og EVE Vanguard, þá er leikjaveitan Steam mikilvægasti vettvangurinn. „Steam er bara hjartað í markaðssetningu á tölvuleikjum á PC-markaði,“ segir Hilmar.
Auk þess taka þeir þátt í stærstu leikjasýningum heims. Gamescom í Þýskalandi, sem haldin verður í ágúst, er í fararbroddi – en CCP tekur einnig þátt í viðburðum eins og PAX og öðrum netbundnum sýningum. Samfélagsmiðlar skipta sífellt meira máli, með stöðugu streymi af myndböndum, klippum og lifandi kynningum. Þá nefnir Hilmar einnig markaðsaðferðir sem byggja á orðspori – þar sem spilararnir sjálfir hvetja vini sína til að prófa leikinn. „Við reynum að virkja leikmennina sjálfa til að hjálpa til við dreifinguna.“
Stór hluti markaðssetningar fer líka fram í gegnum fjölmiðla. CCP fékk nýlega þrjátíu blaðamenn frá helstu tölvuleikjamiðlum heims til landsins á Fanfest-hátíðina, þar sem þeir sátu heila helgi í Hörpunni með starfsmönnum fyrirtækisins. Þar var farið yfir leikina, framtíðaráform og stefnu fyrirtækisins í heild. „Þetta er líka stór hluti af markaðssetningunni,“ segir Hilmar.
Hilmar lýsir því að samhliða því að kynna leikina sjálfa þurfi að skapa hljómgrunn og tengingu við breiðan markhóp í mjög þröngum og samkeppnisþéttum markaði. „Það er eiginlega allt undir sólinni sem maður þarf að grípa til í dag,“ segir hann að lokum. Leikirnir standi á eigin styrk – en athyglin þurfi líka að nást, og helst haldast.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.