PCC BakkiSilicon hf. (PCC) hefur kært innflutning á kísilmálmi frá Kína til fjármála- og efnahagsráðuneytisins og krefst viðskiptaverndar. ESB og Bandaríkin hafa gripið til slíkra aðgerða.
Félagið segir innflutning á verulegu undirverði hafi leitt til alvarlegs samkeppnishalla, lægra söluverðs og rekstraróvissu sem setji framtíð 120 starfa og 30 milljarða fjárfestingu í uppnám.
PCC rekur verksmiðju við Bakka á Húsavík þar sem framleiddur er kísilmálmur. Stærsti eigandi er þýska fyrirtækið PCC SE í Þýskalandi með 65% eignarhlut en 35% eiga innlendir lífeyrissjóðir og Íslandsbanki.
Morgunblaðið leitaði til Kára Marísar Guðmundssonar forstjóra PCC vegna stöðunnar:
„Útlitið er mjög dökkt og við höfum reynt að halda starfsfólki upplýstu sem og öllum lykilaðilum á svæðinu, sveitarstjórn og verkalýðsfélögum og einnig birgjum og viðskiptavinum. Við metum stöðuna í hverri viku og látum vita um leið og eitthvað breytist. En útlitið er ákaflega dökkt.“
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.