Svipmynd: Spennandi tímar í fjártækni

Aðalgeir segist núna vera að setja sig inn í reksturinn …
Aðalgeir segist núna vera að setja sig inn í reksturinn hjá Símanum til að öðlast meiri skilning á helstu áskorunum og tækifærum í fjártækni. Morgunblaðið/Karítas

Aðalgeir tók nýlega við sem forstöðumaður fjártækni hjá Símanum. Hann segist vera afar spenntur fyrir nýja starfinu eftir að hafa starfað sem rekstrarstjóri hjá sprotafyrirtæki. Hann segir að spennandi tímar séu fram undan hjá Símanum þar sem Síminn Pay og Noona hafi fengið afar góðar viðtökur á markaðunum.

Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin?

Þar sem ég er á allra fyrstu dögunum í nýju starfi þá er ég á fullu að setja mig inn í reksturinn til að öðlast skilning á helstu tækifærum og áskorunum. Ég þekki þó af fyrri reynslu að það vantar aldrei áskoranirnar í nýsköpunarumhverfinu og að við þurfum að vera á sífelldri hreyfingu til að nýta tækifærin sem best.

Hver eru helstu verkefnin fram undan?

Ég kem inn í fjártækni Símans á mjög spennandi tímapunkti. Síminn Pay og Noona hafa fengið afar góðar viðtökur á markaðnum og við erum með á annað hundrað þúsund aðila sem nota lausnir okkar í hverjum mánuði.

Slíkt vistkerfi, sem samanstendur af hvort tveggja einstaklingum og fyrirtækjum, býður upp á endalausan fjölda möguleika þegar kemur að frekari vöruþróun og vexti. Sú lúxusstaða kallar þó vissulega á agaða forgangsröðun og erum við nú að ákveða áherslur til komandi missera.

Þekkingin innan teymisins er gríðarlega mikil og starf mitt því að miklu leyti fólgið í að leysa þá krafta úr læðingi með markvissum hætti. Já og að þvælast ekki fyrir vinnandi fólki.

Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráðstefnan sem þú sóttir?

Komandi úr stóli rekstrarstjóra hjá sprotafyrirtæki þá var takmarkað um ferðir á ráðstefnur og annað af því taginu. Þá fjármuni settum við frekar í söluteymið til að sækja ný viðskipti á slíkum viðburðum.

Ég fór þó á Slush-ráðstefnuna í Helsinki sem er alveg hreint ótrúlegur suðupottur fyrir frumkvöðla og fjárfesta. Mæli eindregið með ferð þangað fyrir alla frumkvöðla sem vilja skapa tengingar á alþjóðlegum skala.

Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar?

Það er engin ein bók sem kemur hér í hugann, þótt það myndi óneitanlega hljóma betur. Ég hef feikilega gaman af því að lesa ævisögur fólks, bæði úr viðskiptalífinu og annars staðar frá, og kynnast því hvernig það hefur tekist á við ýmiss konar áskoranir. Ég reyni þannig að læra af mistökum annarra og tileinka mér það sem vel er gert, með misjöfnun árangri þó.

Hvað fræðilegri bækur varðar þá lendi ég ansi oft í því að finnast fyrsti þriðjungurinn góður og restin hálfgert uppfyllingarefni. Ég hef því skipt meira yfir í greinar, hlaðvörp og annað efni til að svala þeirri þörf.

Hvernig heldurðu þekkingu þinni við?

Með því að fara vakandi í gegnum lífið og viðhalda forvitninni sem við fæðumst öll með. Hljómar vissulega augljóst en það er svo auðvelt að detta í eitthvert ákveðið far og festast þar. Góður hagfræðikennari í MBA-náminu hamraði á því að vera „switched on“ og fylgjast, með opnum en jafnframt gagnrýnum huga, með því sem er að gerast í kringum okkar.

Pabbi hefur síðan ævinlega lagt að mér að gefa mig að og fræðast af viðmælendum mínum fremur en að drekkja þeim í eigin hugðarefnum. Það ráð hefur reynst mér gulls ígildi, eins og svo margt sem kemur frá pabba.

Hugsarðu vel um heilsuna?

Já, ég geri það. Bæði hvað varðar reglulega heilsurækt og mataræði almennt. Á síðari árum hef ég svo fattað að það þarf einnig að huga að andlegri heilsu og góðum svefni. Ég taldi að heilsunni væri fyrst og fremst sinnt í ræktinni en hef áttað mig á því að henni er ekki síður sinnt í gæðastundum með fjölskyldunni. Sem er algjörlega frábært.

Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýtt starf?

Ég var einu sinni með mjög ákveðnar hugmyndir um það hvernig draumastarfið væri. Svo hef ég smám saman áttað mig á því að öllum störfum fylgja kostir og gallar. Áhersla mín hefur því færst yfir á fólkið sem ég vinn með frekar en starfið sjálft. Að fólk sé gegnheilt, fært á sínu sviði og einfaldlega skemmtilegt að vinna með. Fyrstu dagar mínir hjá Símanum lofa svo sannarlega góðu í þeim efnum.

Hvað myndir þú læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu?

Mér finnst hagfræði alveg ótrúlega spennandi viðfangsefni og það væri gaman að bæta við sig á því sviði. Síðan finnst mér nett óþolandi að þurfa að viðurkenna að sagnfræði er farin að höfða til mín í auknum mæli. Ég var eitt sinn mjög brattur ungur maður sem sá ekki tilganginn í því að horfa í fortíðina þegar framtíðin biði mín. Það er eitthvað að breytast, sem betur fer líklega.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK