Toyota Motor Corporation, stærsti bílaframleiðandi heims, gerir ráð fyrir 35% samdrætti í hagnaði fyrir rekstrarárið sem lýkur í mars 2026. Félagið gerir nú ráð fyrir að hagnaður verði um 3.100 milljarðar jena, sem samsvarar um 2.914 milljörðum íslenskra króna, samanborið við 4.765 milljarða jena, eða um 4.479 milljarða króna, á fyrra ári.
Samkvæmt uppgjöri félagsins helgast þessi mikli samdráttur fyrst og fremst af tollum sem Bandaríkin hafa sett á innfluttar bifreiðar og varahluti, sem og áhrifum af styrkingu jensins gagnvart helstu gjaldmiðlum. Fyrirtækið áætlar að tollarnir hafi þegar kostað það um sem nemur 169 milljörðum króna á aðeins tveimur mánuðum. Þá er einnig gert ráð fyrir að gengisþróun geti haft neikvæð áhrif upp á allt að 700 milljarða króna á árinu.
Þrátt fyrir áskoranir í rekstri hefur fyrirtækið náð góðum árangri í sölu á hybrid-ökutækjum, sem nú mynda 43% af heildarsölu, samanborið við 35% árið áður. Þetta endurspeglar breytta eftirspurn og aukna áherslu Toyota á sjálfbærni og orkuskipti.
Á blaðamannafundi í Tókýó í vikunni kom fram að stjórnendur litu á yfirstandandi ástand sem hvatningu til að hraða aðlögun að breyttu alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Sérstaklega er horft til aukinnar framleiðslugetu í Bandaríkjunum til að minnka áhættu vegna tolla. Slíkar ákvarðanir eru þó kostnaðarsamar til skemmri tíma litið og krefjast bæði breytinga og uppbyggingar.
Stjórnendur lögðu áherslu á fjárfestingu í nýsköpun, rafvæðingu ökutækja og í alþjóðlegum framleiðsluferlum sem veita svigrúm til að tryggja samkeppnishæfni, jafnvel þegar alþjóðleg viðskipti breytast hratt.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.