Jón Ólafur kjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins

Jón Ólafur Halldórsson, nýr formaður SA.
Jón Ólafur Halldórsson, nýr formaður SA. mbl.is/Eyþór

Jón Ólafur Halldórsson er nýr formaður Samtaka atvinnulífsins. Tilkynnt var um kosningu hans á aðalfundi samtakanna í dag. Kosningaþátttaka var 73,1% og hlaut Jón Ólafur tæplega 98% atkvæða.

Jón Ólafur hefur starfað í þágu atvinnulífsins allt frá árinu 2015 þegar hann tók sæti í stjórn Samtaka atvinnulífsins en hann hefur verið í framkvæmdastjórn samtakanna allt frá árinu 2018. Jón þekkir vel til þess að starfa sem formaður í Húsi atvinnulífsins en hann sat í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu frá árinu 2017 og var formaður SVÞ frá 2019 til 2025.

Fyrirtækin hornsteinn samfélagsins

„Það er mikill heiður að njóta trausts til að leiða SA, heildarsamtök atvinnurekenda á Íslandi,“ segir Jón Ólafur. „Hlutverk Samtaka atvinnulífsins er fjölbreytt og brýnt. SA hefur um árabil verið mikilvæg rödd fyrir fyrirtækin í landinu, bæði hvað varðar hagsmunagæslu og kjarasamningsgerð en ekki síður stefnumótun fyrir atvinnulífið,“

„Það eru blikur á lofti í alþjóðamálum og því brýnna en nokkru sinni að búa vel að íslenskum fyrirtækjum. Við í Samtökum atvinnulífsins erum líkt og áður tilbúin í vinnu með stjórnvöldum og almenningi við að styrkja stoðir samfélagsins okkar og ávallt með hagsmuni atvinnulífsins í landinu í fyrsta sæti. Fyrirtækin eru ásamt fjölskyldunum hornsteinn samfélagsins,“ segir Jón enn fremur.


Jón Ólafur er véltæknifræðingur að mennt en hefur jafnframt lokið MBA-námi frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál fyrirtækja. Hann hefur einnig lokið MS-námi í viðskiptafræði frá sama skóla með áherslu á stefnumörkun og stjórnun fyrirtækja. Enn fremur hefur Jón Ólafur lokið AMP-námi við IESE-viðskiptaskólann í Barcelona.

Jón Ólafur hefur undanfarin 30 ár unnið við stjórnunarstörf í íslensku atvinnulífi. Hann var forstjóri Olís í sjö ár og starfaði hjá félaginu í 27 ár. Frá árinu 2021 hefur Jón Ólafur sinnt ýmsum ráðgjafar- og stjórnarstörfum.

Jón Ólafur er fæddur 1962, kvæntur Guðrúnu Atladóttur innanhússarkitekt og eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK