Landsvirkjun hagnaðist um 12 milljarða

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrsta ársfjórðungi nam 12 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri 13,7 milljörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Eiginfjárhlutfall er 67% og skuldsetning er  1,4× rekstrarhagnaður fyrir afskriftir.

Rekstrartekjur hækkuðu á tímabilinu miðað við sama tíma í fyrra, eftir að hafa dregist saman frá metárinu 2023.

Haft er eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar í tilkynningu að eftir tímabundinn samdrátt í raforkusölu vegna erfiðrar stöðu í vatnsbúskapnum hefur raforkuvinnsla Landsvirkjunar náð fyrri stöðugleika.

„Seinni hluta síðasta árs var miðlunarstaða í sögulegu lágmarki, en eftir úrkomusaman vetur á hálendi Íslands er vatnsstaða allra miðlunarlóna fyrirtækisins nú vel yfir sögulegum meðaltölum. Tekjur hækkuðu um 13% frá fyrra ári og námu 162 milljónum Bandaríkjadala, eða um 21,4 milljörðum króna, á fyrsta ársfjórðungi. Hagnaður af grunnrekstri á fjórðungnum jókst um 18% á milli ára og nam 91 milljón dala, eða rúmlega 12 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall hefur aldrei verið hærra, eða 67% og því stendur Landsvirkjun styrkum fótum í upphafi þess framkvæmdatímabils sem í hönd fer, með byggingu Vaðölduvers (vindorkuvers) og Hvammsvirkjunar (vatnsaflsvirkjunar), auk stækkunar Sigöldustöðvar (vatnsaflsvirkjunar). Nettó skuldir lækka áfram og eru nú 1,4-sinnum rekstrarhagnaður fyrir afskriftir,“ er haft eftir Herði í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK