Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra

Gísli Þór Arnarsson og Jón Garðar Hreiðarsson hafa báðir hafið …
Gísli Þór Arnarsson og Jón Garðar Hreiðarsson hafa báðir hafið störf hjá Terra. Samsett mynd

Terra hefur ráðið Gísla Þór Arnarson sem framkvæmdastjóra þjónustusviðs fyrirtækisins og Jón Garðar Hreiðarsson sem framkvæmdastjóra stefnumótunar og þróunar. Báðir hafa þeir hafið störf hjá Terra. 

Segir í tilkynningu að Gísli Þór muni sem framkvæmdastjóri þjónustusviðs leiða akstursþjónustu og viðskiptastýringu félagsins.

Gísli kemur til Terra frá Samskipum, þar sem hann hefur starfað síðustu 18 árin, en fyrstu 6 árin sem forstöðumaður innflutningsdeildar en síðustu 12 árin sem framkvæmdastjóri innlandssviðs. Gísli er umhverfis- og byggingarfræðingur frá Háskóla Íslands og fór eftir útskrift þaðan til Bandaríkjanna og lauk MBA námi frá University of Louisville í Kentucky.

Jón Garðar hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri stefnumótunar og þróunar en um er að ræða nýtt starf innan fyrirtækisins. Jón Garðar mun leiða stefnumótun félagsins og vinna með starfsfólki í nýjum tækifærum og möguleikum til að þróa Terra áfram.

Hann kemur til Terra úr ráðgjafageiranum en hann hefur undanfarin 20 ár starfað sem sjálfstæður fyrirtækjaráðgjafi og var áður eigandi hjá KPMG. Jón Garðar er með MBA frá École des Ponts Buisness School í París.

„Terra hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og er sífellt að þróast. Gísli Þór og Jón Garðar koma inn með dýrmæta þekkingu og reynslu sem mun styrkja Terra til framtíðar. Það er því mikill fengur fyrir félagið að fá jafn öfluga stjórnendur til liðs við þann flotta hóp sem fyrir er hjá félaginu“ segir Valgeir Baldursson, forstjóri Terra í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK