Haraldur Þórðarson forstjóri Skaga var gestur í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna.
Sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að huga að því að innleiða gervigreindarlausnir inn í sinn rekstur. Spurður hvort Skagi sé farinn að huga að slíkri innleiðingu segir Haraldur svo vera. Skagi vinni markvisst að því að innleiða viðskiptalausnir sem nýta gervigreind.
„Ég er sjálfur talsmaður þess að allir starfsmenn noti gervigreind í sínum daglegu störfum af því að þetta er algjör umbylting í aðgengi að upplýsingum og getur aukið afköst verulega. Ég tel að það sé mjög af hinu góða að við náum að auka framlag okkar og afköst okkar sem einstaklinga líka,“ segir Haraldur.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér: