Samlegð metin á 1,8-2,4 milljarða

Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka og Haraldur Þórðarson forstjóri Skaga. …
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka og Haraldur Þórðarson forstjóri Skaga. Jón Guðni yrði bankastjóri nýs banka. Ljósmynd/Samsett

Stjórnir Íslandsbanka og Skaga hafa samþykkt að hefja formlegar samrunaviðræður milli félaganna.

Í tilkynningu kemur fram að lagt sé upp með að starfsemi Skaga verði sameinuð Íslandsbanka og að hluthafar Skaga eignist samtals 323.859.440 nýja hluti í Íslandsbanka í skiptum fyrir hlutabréf sín í Skaga, eða sem svarar til um 15% útgefins hlutafjár í sameinuðu félagi. Bankastjóri hins sameinaða félags verður Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka.

„Samrunaaðilar sjá fjölmörg tækifæri í sameiningu félaganna. Báðir aðilar hafa lýst vilja sínum til ytri vaxtar og telja að ýmis tækifæri felist í samþættingu á fjármálamarkaði, sem geti skapað veruleg verðmæti fyrir sameinað félag, viðskiptavini þess og aðra hagsmunaaðila,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir enn fremur að bæði félög búi yfir öflugri eignastýringu, sem myndi grunn að áframhaldandi sókn á þeim markaði. Til viðbótar telur bankinn að með samruna við Skaga styrkist enn frekar leiðandi staða Íslandsbanka í fjárfestingarbankastarfsemi. Þá er ávinningur talinn felast í samlegð af samrunanum, en bein árleg samlegð er metin á bilinu 1,8-2,4 milljarðar króna.

Að mati stjórnar Íslandsbanka er um að ræða hagfelld viðskipti fyrir hluthafa Íslandsbanka og þau eru í samræmi við stefnu bankans um arðbæran vöxt. Með þeim eykst fjölbreytni í tekjumyndun bankans og vægi þóknanatekna eykst. Til viðbótar er gert ráð fyrir að fyrirhugaðar breytingar á eiginfjárkröfum fjármálafyrirtækja með innleiðingu svokallaðra CRR3-krafna muni leiða til hagkvæmari nýtingar eigin fjár. Samanlagt er það því mat Íslandsbanka að sameiningin muni renna frekari stoðum undir aukna arðsemi sameinaðs félags. Þá mun sameinað félag áfram búa yfir verulegu umfram eigin fé sem skapar frekari tækifæri til vaxtar.

Lagt er upp með að viðræður fari fram á næstu vikum og munu aðilar upplýsa um framvindu þeirra í samræmi við lögbundna upplýsingaskyldu félaganna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK