Mikill áhugi á stafrænni starfsupplifun

Ísold Einarsdóttir, markaðsstjóri OK.
Ísold Einarsdóttir, markaðsstjóri OK. Ljósmynd/Aðsend

Hátt í 300 þátttakendur hafa skráð sig á ráðstefnu OK sem ber yfirskriftina „Lausnir sem skapa forskot“ og fer fram þann 16. október.

Viðburðurinn skiptist í tvo meginstrauma, annars vegar fyrir stjórnendur og hins vegar fyrir tæknisérfræðinga. Fjallað verður um hvernig fyrirtæki geta nýtt nýjustu tækni til að efla nýsköpun og bæta starfsumhverfi, meðal annars með gervigreind, vefveiðum, og sýndarveruleika.

„Við höfum fengið frábærar viðtökur, áhuginn á ráðstefnunni hefur farið langt fram úr björtustu vonum,“ er haft eftir Ísold Einarsdóttur, markaðsstjóra OK, í tilkynningu. Hún bendir þar á að sérstakur áhugi sé á erindi Christiaan Lustig, sem sé meðal fremstu sérfræðinga Evrópu í stafrænni starfsupplifun og framtíð vinnustaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK