Afkoman á þriðja fjórðungi verri en gert var ráð fyrir

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair.

Drög að uppgjöri þriðja ársfjórðungs Icelandair Group liggja nú fyrir og skv. þeim er gert ráð fyrir að EBIT hagnaður félagsins verði um 74 milljónir Bandaríkjadala samanborið við 83,5 milljónir Bandaríkjadala á sama tíma á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Icelandair birtir uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2025, miðvikudaginn 22. október 2025, en ekki 23. október eins og áður hafði verið tilkynnt.

Í afkomuspá frá því í júlí sl. var gert ráð fyrir aukinni arðsemi á þriðja fjórðungi miðað við fyrra ár, en sú þróun hefur ekki gengið eftir.

Í tilkynningunni kemur fram að tekjur á fjórðungnum jukust á milli ára í samræmi við áætlanir þrátt fyrir þrýsting á fargjöld á Norður-Atlantshafsmarkaðnum. Hins vegar var kostnaður hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir sem skýrist af sterkara raungengi krónunnar, sem veldur hækkun á launakostnaði. Þá var eldsneytiskostnaður hærri en ráðgert var, þar með talinn kostnaður við uppgjör ETS kolefniseininga. Ófyrirséð skammtímaleiga á flugvél í ágúst, vegna viðgerðar á annarri flugvél, hafði aukinn kostnað í för með sér.

Sjóðsstaða félagsins var mjög sterk í lok september en handbært fé var um 410 milljónir Bandaríkjadala og þá hafði félagið aðgang að óádregnum lánalínum upp á 92 milljónir Bandaríkjadala. Miðað við núverandi horfur er gert ráð fyrir að EBIT afkoma fyrir árið í heild verði neikvæð sem nemur 10-20 milljónum Bandaríkjadala.

„Árshlutauppgjör félagsins er enn í vinnslu og getur tekið breytingum fram að birtingu. Fyrir árið 2026 hefur félagið aðlagað framboð sitt að aðstæðum, einkum að veikri eftirspurn á Norður-Atlantshafsmarkaði og sterkri krónu. Þannig verður flugvélum í farþegaleiðakerfinu fækkað um tvær. Þrátt fyrir fækkun flugvéla er ráðgert að heildarframboð ársins, mælt í sætiskílómetrum, haldist nánast óbreytt á milli ára sem þýðir áframhaldandi bætt nýting innviða allt árið um kring. Áhersla á aukna skilvirkni í rekstri og strangt kostnaðaraðhald er áfram forgangsverkefni en þegar hefur verið ráðist í fjölmargar aðgerðir til þess að bæta rekstur og afkomu," segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK