c

Pistlar:

31. desember 2017 kl. 14:20

Sigurður Már Jónsson (sigurdurmar.blog.is)

Hafið er hætt að taka

Það ætti að vera íslenskri þjóð sérstakt fagnaðarefni um hver áramót ef ekki hefur orði sjóslys sem kostar mannslíf. Saga þjóðarinnar er mörkuð alvarlegum sjóslysum sem hafa kostað mörg mannslíf í gegnum aldirnar. En það hefur breyst sem betur fer, þökk sé breyttum atvinnuháttum, kvótakerfinu og þó ekki síst þrotlausu starfi við að bæta öryggi sjómanna.

Þetta veldur því að nú stöndum við þegar nálgast áramót og horfum til þess að til þessa hef­ur hvorki orðið bana­slys í ís­lenska fiski­skipa­flot­an­um né á ís­lensk­um flutn­inga­skip­um það sem af er ári. Ef svo held­ur fram sem horf­ir þá verður þetta fjórða árið, hugs­an­lega al­veg frá land­námi, sem ekk­ert bana­slys verður meðal ís­lenskra sjó­manna. Um þetta hefur verið áður rætt á þessum vettvangi enda undrast greinarhöfundur stundum tómlætið fjölmiðla um þessa áhrifamiklu breytingu.

Allar íslenskar fjölskyldur eiga minningu eða sögu um ættingja sem hefur farist í sjóslysi. Í minni fjölskyldu minnumst við þess þegar afi minn Kristján Stefánsson fórst með Súlunni frá Akureyri 10. apríl 1963 en með henni fórust fimm menn. Sex mönnum af áhöfninni var bjargað af Sigurkarfa frá Njarðvík. Til viðbótar fórust 11 sjómenn í ofviðri fyrir Norðurlandi á sama tíma, fimm með Hafþóri frá Dalvík, tveir með Val frá sama stað, tveir með Magna frá Þórshöfn og tvo tók út af Hring frá Siglufirði. Auk þess fórust tveir bátar aðrir frá Dalvík en mannbjörgvarð af þeim. Þarna fórust 16 íslenskir sjómenn á aðeins tveimur dögum og nokkrir til viðbótar björguðust við illan leik. Þetta var veruleiki þeirra tíma og hér fylgir með klippa úr sjómannablaðinu Ægi frá 1953 en þar var sérstakur dálkur um þá sem fórust við Íslandsstrendur mánuðinn á undan. Slík upplýsingagjöf þótti sjálfsögð á þeim tíma.sjóslys  

2008 fyrsta árið án banaslysa

Fyrsta árið sem var án bana­slysa meðal ís­lenskra sjó­manna var árið 2008 en það var rifjað upp í frétt í Morgunblaðinu fyrir stuttu. Árin 2011 og 2014 urðu heldur ekki mannskaðar á sjó. Í fyrra fór­ust tveir ís­lensk­ir sjó­menn og einn árið 2015. Á síðasta ára­tug, að þessu ári meðtöldu, hafa 11 sjó­menn far­ist, en árið 2007 var versta ár ald­ar­inn­ar í þessu sam­hengi, en þá fór­ust fimm sjó­menn.

Ef litið er tæp­lega 50 ár til baka kem­ur í ljós að árið 1971 fórst 31 sjó­maður í ís­lenska flot­an­um, 19 ári síðar og 34 árið 1973. 49 fórust veturinn 1970/1971 eins og sést í meðfylgjandi blaðaúrklippu. Oft fór­ust fleiri en tíu sjó­menn á ári og árið 1986 fór­ust til dæm­is 23. Við sem erum komin yfir miðjan aldur munum forsíður blaða um vetrarvertíð þegar passamyndir birtust af heilu áhöfnunum sem höfðu farist. Það er í raun ótrúlegt að lifa þessa breytingu hjá þjóð sem á jafn mikið undir sjósókn.

Slysa­varna­skóli sjó­manna sett­ur á lagg­irn­ar

Slysa­varna­skóli sjó­manna var sett­ur á lagg­irn­ar árið 1985 og hef­ur þar verið unnið mikið starf að ör­ygg­is- og fræðslu­mál­um. Ný ákvæði í sigl­inga­lög­um um rann­sókn­ir sjó­slysa tóku gildi 1986 og 2001 voru sett ný lög og reglu­gerð í kjöl­farið um mála­flokk­inn. Í áðurnefndri grein í Morgunblaðinu fyrir stuttu var sagt frá því að það sem af er ári hafa alls 134 at­vik, stór og smá, verið skráð hjá sjó­slysa­sviði Rann­sókna­nefnd­ar sam­göngu­slysa. Alls urðu þau 104 í fyrra, en meðaltal mála á tíma­bil­inu frá 2006 til 2015 er 152 á ári. Reyndar var eitt bana­slys skráð hjá nefnd­inni, en það var þegar kaj­akræðari fórst í ósum Þjórsár í lok apríl. Lög­regla hef­ur hins veg­ar farið með rann­sókn þess máls.farist

Er jóla­hátíðin gengur í garð dreg­ur úr sjó­sókn og mörg skip eru bund­in við bryggju fram yfir ára­mót. Skipulag kvótakerfisins hefur auðveldað að stýra sjósókn og það ásamt bættum skipum og betri Það á þó ekki við um öll skip og sókn minni dagróðrar­báta stjórn­ast ekki síst af veðurfari. Við vonum það besta um leið og sjómönnum landsins er send ósk um farsælt nýtt ár án sjóslysa.

Það skal tekið fram að þau viðhorf sem birtast í þessum pistli eru eingöngu höfundar og á hans ábyrgð.