c

Pistlar:

2. janúar 2019 kl. 18:22

Sigurður Már Jónsson (sigurdurmar.blog.is)

Byltingarafmæli á Kúbu og einkaframtakið heldur innreið sína

Nú um áramót voru 60 ár liðin frá því að bylting kommúnista undir stjórn Fidel Castro átti sér stað á Kúbu. Vissulega eru það nokkur tímamót þó erfitt sé að meta með sanni hvers er að minnast núna. Castró-ættin er nú ekki lengur formlega við völd og heldur hefur verið slakað til á efnahagssviðinu en efnahagur landsmanna hefur verið bágborinn mest allan tímann undir stjórn sósíalista. Lengst af nutu Kúbverjar þess að vera hluti kommúnistablokkarinnar á tímum Kalda stríðsins en eftir að Sovétríkin hrundu upp úr 1990 hurfu helstu stoðir efnahags Kúbu. Svo illa var landið leikið að þar ríkti nánast hungur árin á eftir. Því er gerð ágæt skil í bókinni Soralegi Hav­anaþríleikurinn eftir Pedro Juan Gut­iérrez, sem kom út hjá bókaútgáfunni Sæmundi fyrir jól, í fjörlegri þýðingu Krist­ins R. Ólafs­sonar. Tilveran á Kúbu árin eftir hrun kommúnismans var hrika­leg og lífs­bar­átt­an hörð. Eng­in leið er að kom­ast af á laun­un­um ein­um sam­an, ef ein­hverri vinnu er til að dreifa, og allt er gert til að snapa pen­inga. Ekk­ert er of heil­agt til að það sé ekki til sölu, síst af öllu lík­am­inn. Þetta rekur Gut­iérrez í bók sinni.kub

35% allra Kúbverja búa í Bandaríkjunum

Hvernig meta skal stöðu og horfur á Kúbu getur verið vandasamt en hafa má í huga að um 35% allra þeirra sem eru af kúbverskum ættum búa núna í Bandaríkjunum, flestir í Flórída. Þetta hefur gert ástandið um margt sérkennilegt. Bandaríkjamenn hafa beitt efnahagsþvingunum en um leið er stórt þjóðarbrot að reyna að koma peningum til Kúbu, til ættingjanna sem urðu eftir og máttu þola stöðnun og framtaksleysi sósíalismans. Raúl Castro slakaði á og leyfði einkaframtak og nú er einkarekstur og vísir að neysluhyggju að halda innreið sína.

Ung­ir Kúb­an­ar í dag eru ein­stak­lings­hyggju­menn, stimplaðir „hug­mynda­fræðileg­ir frá­vill­ing­ar“ af hinum eldri, sem hjuggu syk­ur­reyr í þágu þjóðar­inn­ar. Þótt þau hafi al­ist upp und­ir sí­bylju um hryll­ing banda­rískr­ar heimsvalda­stefnu og viðvar­andi viðskipta­hindr­an­ir eru þau með húðflúr þar sem stend­ur „All You Need is Love“ eða „Live Hard“ að því er kemur fram í grein Ruth Behar, prófessor í mannfræði við Michigan-háskóla, sem birtist í áramótablaði Morgunblaðsins. Foreldrar hennar flúðu Kúbu og misstu allt sitt í byltingunni. Eins og aðrir út­lag­ar sinn­ar kyn­slóðar neita for­eldr­ar hennar að snúa aft­ur til eyj­ar­inn­ar. Þau vilja frek­ar halda í minn­ing­ar sín­ar um horfna Kúbu. „Í næst­um 30 ár hef ég farið aft­ur upp á eig­in spýt­ur og reynt að skilja hvað orðið er um Kúbu,“ skrifar hún.

Ruth segist hafa vaxið úr grasi eins og svo mörg börn kúb­anskra út­laga í áfalli vegna þess sem for­eldr­ar hennar misstu í bylt­ing­unni 1959. Þau hafi í raun trúað á þær fé­lags­legu um­bæt­ur sem Castro hafði boðað – jafn­rétti fyr­ir kon­ur og Kúb­ana af afr­ísk­um upp­runa, ókeyp­is leik­skóla, land fyr­ir bænd­ur, hús­næði fyr­ir fá­tæka, heil­brigðisþjón­ustu fyr­ir alla og mennt­un fyr­ir öll börn – og fannst þau hafa verið svik­in þegar hann sner­ist til alræðis­hyggju og komm­ún­isma og fyrirheitin létu standa á sér.

Elska merkjavöru en forðast barneignir

Ruth sagði að unga kynslóðin á Kúbu elski merkja­vöru. Chanel hafi komið til Hav­ana til að halda tísku­sýn­ingu í maí 2016. Mun­ur­inn á kyn­slóðunum kom fram með slá­andi hætti þegar barna­barn Fidels Castros, Tony Castro (Ant­onio Castro Ulloa), upp­renn­andi 19 ára fyr­ir­sæta, kom fram á Paseo del Pra­do!

Fæðing­artíðni hef­ur dreg­ist svo sam­an á Kúbu að það er áhyggju­efni og íbú­arn­ir eru þeir elstu í allri Rómönsku Am­er­íku segir Ruth í grein sinni. „Ég mun aldrei fæða barn fyr­ir Fidel Castro,“ var kona sem hún þekkti einu sinni vön að segja. Hún hefur eftir öðrum að efna­hags­leg­ar aðstæður og þá sér­stak­lega sár skort­ur á hús­næði hafi valdið því að það er sér­stak­lega flók­in ákvörðun að eign­ast börn. Fólk verður að dvelja áfram á heimili foreldra sinna, með afa og ömmu heima, og það hvetur ekki beinlínis til barneigna.

Það hafa margir séð Kúbu í hillingum undir stjórn Fidel Castro. Staðreyndin er sú að pólitískir andstæðingar hafa verið fangelsaðir og myrtir. Þjóðin hefur verið svipt framtíðarsýn og efnahagslegri velsæld en Kúba var ágætlega stödd þegar byltingin var gerð þó vissulega hafi ríkt spilling og misskipting verið nokkur. Ríkið hefur stýrt öllu síðan og Fidel Castro reyndi meira að segja fyrir sér sem byltingaleiðtogi á alþjóðavísu með hernaðarátökum sem náðu allt til Afríku. Vistfræðileg rányrkja hefur verið stunduð á sumum sviðum á meðan fólk hefur látið hafa sig í að mæta til Kúbu til að styðja byltinguna með sjálfboðaliðastörfum. Nýir tímar eru að renna upp á Kúbu.

Það skal tekið fram að þau viðhorf sem birtast í þessum pistli eru eingöngu höfundar og á hans ábyrgð.