c

Pistlar:

22. mars 2021 kl. 14:06

Sigurður Már Jónsson (sigurdurmar.blog.is)

Má almenningur ekki sjá gosið?

Það er stundum þungt undir rassinn á pistlaskrifara og ég er ekki einn af þeim sem hlaupa til þegar eitthvað gerist nýtt eða óvenjulegt. En ég hef mikinn skilning á því að fólk skuli hafa viljað berja þetta nýjasta náttúrundur augum sem nú blasir við í Geldingadölum á Reykjanesi. Sú staðreynd að þetta eldgos gerist nánast við bæjardyrnar hér á þéttbýlasta stað landsins og er þar að auki glæsilegt sjónarspil hlýtur að hvetja marga til þess að fara og sjá þetta með eigin augum. Í raun lá það í augum uppi! Margir fóru af stað og flestir sem fóru himinlifandi eftirá og voru þar að auki sérlega duglegir að dreifa myndum á samfélagsmiðlum, væntanlega okkur hinum, sem látum okkur vefmyndavélina nægja, til upplýsingar og ánægju.gos

Auðvitað á fólk rétt á að skoða svona náttúruundur og eðlilegt er að fara fram á að þeir aðilar sem fara með aðgengismál þarna auðveldi fólkinu aðkomuna. Þar er átt við lögreglu, almannvarnir og Vegagerðina. En nú bregður svo við að það er eins og það hafi ekki verið neinn skilningur á því að almenningur vildi skoðað þetta um helgina og lítið gert til að auðvelda fólki aðkomu. Þeir sem fóru þarna í gær virðast sammála um að ef fólki hefði verið leyft að fara með bíla inní Nátthaga og leggja þar hefði verð hægðarleikur fyrir flesta að ganga þaðan upp að eldgosinu, sérstaklega á meðan vindáttin er hagstæð. Með smá skipulagi ætti að vera hægt að koma fyrir mikið af bílum í Nátthaga. Þaðan er auðveldur gangur upp að gossvæðinu. Leiðin er ekki nema um tveir kílómetrar og hækkun ekki nema 100 metrar. Þarna er allt þurrt og hættulaus gönguleið segja menn kunnugir svæðinu.

Furðuleg lokun Suðurstrandarvegs

Því í ósköpunum var þetta ekki gert? Og af hverju var Vegagerðin að loka Suðurstrandarvegi sem gerði það að verkum að fólk varð að leggja bílum sínum langt í burtu og ganga langa leið að óþörfu? Þannig voru margir að ganga 10 til 12 kílómetra að gosinu þegar hægt var að fara á að giska tveggja kílómetra leið úr Nátthaga, nú eða heldur lengri leið frá þjóðveginum. Og eiga svo eftir að ganga til baka, það er himinn og haf á milli þess að ganga 5 kílómetra eða 20 til 25 kílómetra fyrir venjulegt fólk. Það er hálf dapurlegt að lesa frásagnir fólks sem var að villast um og ganga langar leiðir að óþörfu, sumir við það að örmagnast og þurftu fyrir vikið að fá aðstoð björgunarfólks. Með betra skipulagi hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta. Vegagerðin hefði án efa komið skilaboðum til fólks um að fara varlega þar sem það þurfti við veginn.svang

Hefði ekki verið skynsamara ef þessir aðilar sem áttu að hafa umsjón á svæðinu hefðu gert sitt besta til þess að auðvelda fólki aðkomu með samræmdum og skynsömu aðgerðum sem hefðu verið vel auglýstar í samstarfi við fjölmiðla? Um leið þarf að gefa góðar upplýsingar um öryggismál en ef leiðin er stutt er síður hætta á að slys verði. Augljóslega mun verða áhugi á gosinu á meðan á því stendur. Því er skynsamast að útbúa bílastæði eins nálægt gosinu, stika og merkja gönguleiðir og hafa eftirlit á svæðinu. Brýnast er að fylgjast með gashættu en þar skiptir veðurfar mestu. Ef þetta er gert þá ætti að vera unnt að tryggja að sem flestir sæju þetta náttúruundur. Um leið ætti að vera hægt að tryggja aðgengi ferðamanna að þessu en augljóslega verða gosstöðvarnar með mikið aðdráttarafl á næstunni.