c

Pistlar:

21. apríl 2022 kl. 18:57

Sigurður Már Jónsson (sigurdurmar.blog.is)

Samhæfingarstjóri réttlátra umskipta

Forsætisráðuneytið auglýsir með heilsíðuauglýsingu í dag eftir leiðtoga til að leiða samhæfingu verkefna á sviði „sjálfbærrar þróunar og réttlátra umskipta“. Í auglýsingunni kemur fram að um er að ræða nýtt starf og að viðkomandi hafi tækifæri til að koma að mótun verkefnisins. Útlistun starfsins birtist í þessum orðum: „Meðal áhersluatriða er mótun stefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun, samvinna við sveitarfélög og við aðila vinnumarkaðarins um réttlát umskipti („réttlát umskipti“ eru tvítekin í stuttri auglýsingu) og samhæfing ólíkra ráðuneyta við eftirfylgni aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum.”loftslagskata

Þetta er í fyrsta sinn sem forsætisráðuneytið auglýsir eftir einstaklingi til þess að koma beinlínis að málefnum umhverfis og sjálfbærrar þróunar og er þessi málaflokkur þó orðinn fyrirferðamikill í stjórnsýslunni og er sagður vera helsti áhersluþáttur nýrrar ríkisstjórnar sem tók sér ríflega tvo mánuði í haust til þess að endurnýja heitstrengingar sínar um samstarf í ríkisstjórn.

Undirritaður hefur fjallað talsvert mikið um umhverfis- og loftslagsmál hér í pistlum og sérstaklega í kringum loftslagsráðstefnuna í Glasgow í haust. Þar gegndi forsætisráðherra stóru hlutverki og tók þátt í því serimóníum ráðstefnunnar og var fremst í flokki hersveitar úr stjórnsýslu og stjórnmálum sem skundaði til Glasgow. Þá vakti pistlahöfundur athygli á því að forsætisráðherra er ekki sérfræðingur í loftslagsmálum, hennar sérfræðisvið er bókmenntafræði með áherslu á glæpasögur. Það hittir kannski ágætlega á þar sem einn helsti talsmaður loftslagsógnarinnar hér á landi er prófessor í bókmenntum við Háskóla Íslands.

Hvað með að ráða vísindaráðgjafa?

Við þetta tækifæri skrifaði pistlahöfundur: „Forsætisráðherrar njóta þess að hafa aðstoðarmenn og aðgang að sérfræðingum. Það gæti verið umhugsunarvert að þrátt fyrir yfirlýst mikilvægi loftslagsmála og áhuga forsætisráðherra á málaflokknum þá er engin í forsætisráðuneytinu sem getur talist sérfræðingur í loftslagsmálum. Allmargir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir inn í forsætisráðuneytið síðan Katrín kom inn, stór hluti þeirra á sviði jafnréttismála enda hefur ný skrifstofa um þann málaflokk verið sett upp eins og fréttir hafa verið af. En það er engin sem getur talist sérfræðingur í loftslagsmálum starfandi í forsætisráðuneytinu.“skyrslurlosunii

Auðvitað hefur forsætisráðherra og stjórnsýslan aðgang að fólki með grunn í vísindum og þekkingu á loftslagsmálum. En við erum stöðugt áminnt um að það þarf að vera til staðar gagnrýnin hugsun og að menn hætti ekki að efast og spyrja spurninga. Nú síðast vorum við minnt á það hvað þekking á mörgu í umhverfismálum stendur á veikum stoðum. Fullyrðingar, sem haldið hefur verið á lofti á Íslandi árum saman um losun koltvísýrings og annarra meintra gróðurhúsalofttegunda úr framræstu landi, eru óra­vegu frá því að geta staðist, ef marka má niðurstöðu nýrra rann­sókna sem birtar hafa verið af Landbúnaðar­háskóla Íslands. Marga rak í rogastans enda eru aflátssölubréf á framræstar mýrar þegar orðin ábatasöm atvinnugrein. Stendur ekkert á bak við það nema fullyrðingar út í bláinn? Um var að ræða skekkju upp á tæplega 90% af fyrra mati um koltvísýringslosun. Stærð sem gerbreytir öllum forsendum enda væri þá losun aðeins 1-5 tonn á hektara - ekki 20-30. Hingað til hefur heildarlosun frá þurrkuðum mýrum á Íslandi verið áætluð um 8 milljónir tonna á ári en gæti samkvæmt þessu verið ein milljón tonn. Til að benda á stærðir þá er talið að Carbfix verkefnið í sinni ýtrustu útgáfu geti bundið 3 milljónir tonna á ári, með óheyrilegum tilkostnaði. Eftir að þessar tölur úr rannsóknum Landbúnaðarháskólans hafa birst hefur verið vitnað til annarra rannsókna sem ganga í öfuga átt sem sýnir vel hvílík óvissa ríkir í þessum málum.sjæalf

Pappírsfólkið

En nú er semsagt forsætisráðuneytið að gera bragabót í málinu en áfram má spyrja, hefði ekki verið nær að ráða almennilegan vísindaráðgjafa inn í forsætisráðuneytið? Þá einhvern sem gæti aðstoðað íslensk yfirvöld við að meðtaka sjálfstæðar og yfirvegaðar skoðanir í loftslags- og umhverfismálum í stað þess að sitja alltaf með pappíra hávaðafólksins í faginu í höndunum. Sama fólkið og íslenskir skattgreiðendur styðja með stöðugt hækkandi framlögum enda er orðin starfsgrein að raða til verkefnum og pappírum í þessum málaflokki. Eins og auglýsing forsætisráðuneytisins sýnir núna.