sun. 29. nóv. 2015 12:26
LeBron James tryggði sínum mönnum sigur í nótt.
LeBron James hetjan

LeBron James tryggði sínum mönnum í Cleveland Cavaliers sigur gegn Brooklyn Nets á síðustu stundu í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Cleveland sigraði Brooklyn 90:88 en sigurkarfa James kom þegar ein sekúnda var eftir af leiknum. James og Kevin Love voru stigahæstir í liði Cleveland með 26 stig hvor.

Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt en ótrúleg sigurganga meistara Golden State Warriors heldur áfram. Í nótt sigraði liðið Sacramento Kings, 120:101 og hefur unnið 18 fyrstu leiki tímabilsins. Liðið heldur því áfram að slá metið yfir flesta sigra í röð í byrjun tímabils. 

Ekkert gengur hins vegar hjá LA Lakers. Í nótt tapaði Lakers fyrir Portland, 108:96. Liðið hefur þar með tapað 13 leikjum en einungis sigrað tvo. Kobe Bryant var eins og svo oft áður stigahæstur í liði Lakers en hann skoraði 21 stig.

Úrslit næturinnar:

Washington - Toronto 82:84
Cleveland - Brooklyn 90:88
Dallas - Denver 92:81
San Antonio - Atlanta 108:88
Utah - New Orleans 101:87
Portland - LA Lakers 108:96
Golden State - Sacramento 120:101

til baka