Ert þú með ábendingu?

Sendu okkur myndir eða myndskeið úr þínu nærumhverfi á netfrett@mbl.is eða með skilaboðum á Facebook-síðu mbl.is

mbl.is

Við þökkum fyrir samfylgdina, umfjölluninni hefur lokið.

Stund milli stríða

Lögreglumenn hvíla lúin bein eftir annasama tvo daga.

Komst á hreyfingu á lokametrunum fyrir fundinn

Viðræður Íslands og Evrópusambandsins um undanþágur Íslands vegna fyrirhugaðrar löggjafar ESB um losunarheimildir í flugi komust á mikla hreyfingu á lokametrunum fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins sem nú fer fram í Hörpu. Þetta segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra í samtali við mbl.is. Hún segir málið nú komið á allt annan stað en það var fyrir stuttu síðan.
Meira »

Sér mögulega eftir að hafa rétt Guðna regnhlífina

Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu forseta, tjáir sig um regnhlífarvandræði forsetans í gær.

Starfsfólk sendiráða á meðal gesta

Nóg hefur verið að gera á Caruso í miðbæ Reykjavíkur í kringum leiðtogafund Evrópuráðsins og hefur fólk úr sendiráðum, m.a. frá Ungverjalandi, Rúmeníu og Portúgal snætt á veitingastaðnum.
Meira »

Forseti Tékklands fékk sér pylsu

Hádegismaturinn var ekki af verri endanum hjá Petr Pavel, forseta Tékklands, í dag. Pave fékk sér pylsu í brauði á Bæjarins bestu.
Meira »

Katrín sleit leiðtogafundinum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur slitið leiðtogafundi Evrópuráðsins sem fór fram í Reykjavík.
Meira »

Verða að vona að lenda ekki í því sama og Úkraína

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir gríðarlega jákvæðar fréttir hversu mörg ríki hafi skuldbundið sig til að vera með í tjóna­skrá Evr­ópuráðsins af völd­um inn­rás­ar Rússa í Úkraínu. Segir hún að önnur ríki hafi sagt að vinna við að koma slíku verkefni í gang gæti tekið ár eða jafnvel nokkur ár, en að tekist hafi að ná breiðum stuðningi á aðeins sex mánuðum.
Meira »

Höfðu ekki hugmynd um leiðtogafundinn

Hjónin Caroline Schmidt og Jason Kovacs frá Bandaríkjunum höfðu ekki hugmynd um að leiðtogafundur Evrópuráðsins yrði haldinn í Reykjavík fyrr en þau komu hingað til lands.
Meira »

Tjónaskráin ánægjuleg niðurstaða

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er afar ánægð með lyktir mála vegna tjónaskrár Evrópuráðsins af völdum innrásar Rússa í Úkraínu og þykir það góður árangur leiðtogafundar Evrópuráðsins í Reykjavík.
Meira »

Ánægjulegt að hitta Macron og Scholz

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist á Twitter vera ánægð með fundi sína með Emmanuel Macron Frakklandsforseta og Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík.

„Það var frábært að hitta þig enn og aftur. Ég er þakklát fyrir það góða og trausta samband sem ríkir á milli okkar tveggja landa og ánægð með að við gátum rætt um málefnin sem voru á dagskrá leiðtogafundar Evrópuráðsins,” sagði Katrín er hún ávarpaði Macron.

Hún sagði jafnframt að ánægjulegt hefði verið að hitta Scholz á nýjan leik.

„Við töluðum um ýmis málefni á fundinum og einnig um nýsköpun og græna orku.”

Umferðartafir á Reykjanesbraut í dag

Myndasyrpa: Gekk á ýmsu á fyrsta degi

Öllu var tjaldað til í Hörpu í gær þegar leiðtogafundur Evrópuráðsins hófst í gær. Ljósmyndarar mbl.is, Morgunblaðsins og AFP-fréttaveitunnar festu augnablikin á filmu.
Meira »

Sólveig Anna skýtur föstum skotum

Ekki eru allir ánægðir með fundinn sem nú fer fram. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, birti þessa mynd í morgun.

Vefur Isavia lá niðri eftir árás

Netárás var gerð í morgun á vefsíðu Isavia, sem birtir flugupplýsingar fyrir alla íslenska áætlunarflugvelli. Síðan lá niðri í um það bil tvær klukkustundir. Um var að ræða svokallaða DDoS árás.
Meira »

Katrín og kanslarinn

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, áttu fund í morgun.