Erindi Umboðsmanns barna um mataraðstöðu barna í Áslandsskóla verður tekið fyrir á næsta fundi skólaráðs Áslandsskóla. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Fanney Halldórsdóttur, sviðsstjóri fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnafjarðarbæjar.
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, vakti í vikunni athygli á því á Facebook-síðu embættisins að engin viðbrögð hefðu enn borist vegna ábendingar sem hún hefði sent Hafnarfjarðarbæ síðasta vor vegna aðstæðna í skólamötuneyti Áslandsskóla.
Ábendingin var á þann veg að þeir nemendur sem eru ekki í mataráskrift í skólanum fá ekki að sitja með félögum sínum í matsal skólans í matarhléum. Þess í stað séu þeir látnir borða nestið sitt á annarri hæð skólans.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/10/15/kvartad_yfir_adstaedum_i_skolamotuneyti/
„Umboðsmaður barna hefur átt samskipti vegna málsins við skólastjóra Áslandsskóla, skólaskrifstofu Hafnarfjarðarbæjar og fráfarandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar þar sem gerðar voru athugasemdir við framangreint fyrirkomulag,“ segir í bréfinu, en umboðsmaður skorar á hlutaðeigendur að bæta úr stöðunni sem allra fyrst.
Taki aðstöðu nemenda til endurskoðunar
Í svari Fanneyjar við fyrirspurn mbl.is segir hún að á fundi fræðsluráðs þann 26. júní hafi verið fjallað um erindi umboðsmanns barna varðandi aðstöðu þeirra nemenda sem komi með nesti að heiman til að matast í matsal Áslandsskóla.
Á fundinum hafi fræðslustjóra verið falið að fylgja erindinu eftir. „Fræðsluráð lagði í bókun sinni áherslu á að stjórnendur Áslandsskóla taki til endurskoðunar aðstöðu nemenda í matarhléum frá og með nýju skólaári með það fyrir augum að tryggja öryggi, svigrúm til samveru og tækifæri til félagslegar samskipta og tengslamyndunar í matarhléum sem og öðrum stundum innan skóladagsins,“ segir í svari Fanneyjar.
Unnið sé að lausn málsins og úrlausnar að vænta á næstu vikum. „Við höfum það ávalt að leiðarljósi að ekki verði brotið á rétti barnanna hvorki í þessu máli né nokkrum öðrum innan grunnskóla bæjarins.“
Erindi Umboðsmanns barna og lausnarleiðir verði tekin fyrir á næsta fund skólaráðs Áslandsskóla þar sem fulltrúar skólasamfélagsins sitja.