mán. 20. maí 2019 23:24
Mik­ill viđbúnađur var á Reykja­vík­ur­flug­velli í kvöld ţegar ţrjár flugvélar af gerđinni DC-3/​C-47 lentu á vellinum. Von er á 11 til viđbótar, en lokaáfangastađurinn er Normandí í Frakklandi en ţar fer fram at­höfn 6. júní í til­efni ţess ađ 75 ár eru ţá liđin frá inn­rás­inni í Normandí.
Ţrír Ţristar á Reykjavíkurflugvelli

Ţrjár svokallađar ţristavélar, DC-3- eđa C-47-flugvélar frá Bandaríkjunum, lentu á Reykjvíkurflugvelli í kvöld. Von er á ţeirri fjórđu í Keflavík síđar í kvöld eđa nótt. Vélarnar eru í leiđangr­in­um D-Day Squa­dron og koma til Reykja­vík­ur á leiđ sinni frá Banda­ríkj­un­um til Frakk­lands til ađ taka ţátt í at­höfn í Normandí 6. júní.

Ţann dag verđa 75 ár liđin frá inn­rás­inni í Norm­andí sem fjöldi DC-3-véla tók ţátt í. Líkt og kom fram í Morg­un­blađinu fyr­ir helgi er mik­ill viđbúnađur á Reykja­vík­ur­flug­velli vegna komu ţrist­anna.

Frétt mbl.is

Alls fara 15 vél­ar frá Banda­ríkj­un­um til Frakk­lands og koma hér viđ í áföng­um. Sveit ţristanna, eins og vélarnar eru iđulega nefndar, frá Bandaríkjunum telur 12 til 15 vélar og kom ein til Reykjavíkur í gćr og er ţegar farin áfram til Skotlands. Ann­ar eins fjöldi bćt­ist svo viđ frá Bretlandi og meg­in­landi Evr­ópu.

 

Vélarnar verđa á stćđi norđan viđ byggingu Icelandair á Reykjavíkurflugvelli. Fimm til sex vélar bćtast líklega í hópinn á morgun. Stefnt var ađ ţví ađ sýna vélarnar á morgun, ţriđjudag, en í tilkynningu frá Flugmálafélagi Íslands og Ţristavinafélaginu segir ađ óvíst er ađ af ţví verđi fyrr en á miđvikudag og verđur tímasetning auglýst nánar.

Flugmálafélag Íslands, Isavia og fyrirtćki sem annast ţjónustu og afgreiđslu ferjuflugvéla á Reykjavíkurflugvelli hafa samvinnu um ađ taka á móti vélunum og ađstođa hópinn eftir ţörfum.

 

til baka