Gert hefur verið samkomulag um að Kristrún Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku banka, láti af störfum hjá bankanum.
Eins og áður hefur komið fram sækist Kristrún eftir sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir næstu alþingiskosningar, sem haldnar verða í haust.
Í tilkynningu sem Marinó Örn Tryggvason bankastjóri sendir starfsmönnum er Kristrúnu þakkað kærlega fyrir vel unnin störf í þágu bankans og henni óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Hún hóf störf hjá bankanum í janúar 2018.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/01/14/fjorar_konur_i_fimm_efstu_hja_samfylkingunni/