Það að ferðamenn reyni að komast of nálægt gosstöðvum við Sundhnúkagíga er vandamál sem hefur einnig komið upp fyrri eldgosum á Reykjanesskaga. Ekki hefur þó þurft að kalla til björgunarsveitir í tengslum við núverandi gos, en athygli vakti þó á dögunum að reynt var að aka Dacia Duster-bifreið utanvegar við leiðigarð á svæðinu. Sú bifreið er þó farin núna.
„Það eru auðvitað alltaf einhverjir sem koma sér nærri gosstöðvum, það er óumflýjanlegt,“ segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is en bætir við: „Þetta hefur í sjálfu sér ekki verið stórt vandamál hingað til.“
Eins og mbl.is hefur greint frá þá var Dacia Duster-bifreið úti í hrauni við byrjun leiðigarðsins sem liggur vestur út fyrir Bláa lónið á sunnudaginn. Úlfar segir bílnum hafi aldrei verið ekið inn fyrir lokunarpósta og að hann sé farinn.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/21/dacia_duster_uti_i_hrauni_vid_gosstodvarnar/
Nokkrir staðir sem ferðamenn gera sér leið frá
Ferðamennirnir Bata Osovina og Tata Osovina hafa undanfarið birt myndbönd á samfélagsmiðlum sínum þar sem þeir eru komnir mjög nálægt eldgosinu við Sundhnúkagíga. Í einu myndbandinu, sem hefur vakið mikla athygli, sést hvernig þeir elda pylsur á pönnu með hjálp hitans frá hrauninu.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/22/myndskeid_eldudu_pylsur_vid_eldgosid/
Hvernig komast göngugarpar upp að nýju gosstöðvunum?
„Þeir gætu verið að koma frá Grindavíkurvegi, Bláa lóninu eða eins frá bílastæðunum við Fagradalsfjall,“ svarar Úlfar.
Hann ítrekar að fólk sem fer inn á hættusvæði ferðist á eigin ábyrgð.
„Þetta er vandamál sem við þekkjum vel alveg frá fyrsta gosi og þetta er gos númer sjö.“
Fólk fer upp að gömlu gosstöðvunum
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, kveðst ekki hafa upplýsingar um að það sé neinn sérstakur fjöldi fólks sem er að reyna gera sér leið upp að nýja gosstöðvunum og hefur björgunarsveitin ekki fengið útkall vegna þess.
Hann nefnir þó að einhver fjöldi fólks sé farinn að gera sér ferðir upp að gömlu gosstöðvunum. Um helgina hafi til dæmis björgunarsveitirnar Þorbjörn og Skyggnir bjargað þremur örmagna göngumönnum á gönguleiðinni að Litla-Hrút rétt vestan við Kistufell.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/21/bjorgudu_thremur_erlendum_karlmonnum/