Ég fylgist reglulega með skrifum bandaríska náttúrulæknisins Dr. Michael Murray. Í nýlegri grein á vefsíðu hans kom fram að FDA eða Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, sé nú að fara fram á að bólgueyðandi lyf eins og Íbúprófen og Voltaren (NSAID eða non-aspirin nonsteroidal anti-inflammatory drugs) verði merkt með viðvörun um að notkun á þeim geti leitt til hjartaáfalla og heilablóðfalls. Auk þessara tveggja alvarlegu aukaverkana er vitað að lyf í þessum flokki geta valdið aukaverkunum eins og:
NSAID lyfin, sem hér um ræðir eru meðal annars Ibuprofen (í USA selt sem Motrin og Advil), Aleve (naproxen sodium), Celebrex (celecoxib), Feldene (piroxicam) og Voltaren (diclofenac sodium), eru notuð í miklum mæli í Bandaríkjunum (og hér á land) til að meðhöndla liðbólgur, tíðakrampa, höfuðverki, kvef og flensueinkenni.
Í grein Dr. Michael Murray, kom fram að hvorki lyfjafyrirtækin né læknar sem lyfjunum ávísa, fjalli um hættulegar afleiðingar ofnotkunar eða langtímanotkunar á bólgueyðandi lyfjum. Einhverjar leiðbeiningar er auðvitað að finna í dvergaletri á límmiða sem settur er á glös eða í pakka, en því miður lesa þær fæstir.
SALAN Á ÍSLANDI SVIMANDI HÁ
Þegar ég las þetta lék mér forvitni á að vita hversu mikið af þessum lyfjum væri selt á Íslandi. Ég hafði samband við Lyfjaeftirlitið og þeir veittu mér góðfúslega upplýsingar um selt magn af bólugeyðandi lyfjum í þessum NSAID flokki árið 2015. Tölurnar eru að mínu mati svimandi háar, því þær miðast við skilgreinda dagskammta, þ.e. það magn sem fullorðinn ætti að taka á dag.
Svo ég vísi aftur í grein Dr. Murray, segir hann að þrátt fyrir mikla notkun sé að koma í ljós að þessi lyf geti í mesta lagi skilað skammtíma árangri, en jafnframt aukið á langtíma vandamál. Sem dæmi má rekja um 7.500 dauðsföll árlega í Bandaríkjunum beint til notkunar á lyfjum í þessum flokki (NSAID). Dr. Murray heldur því jafnframt fram að notkun á lyfjum í þessum flokki (NSAID) við t.d. liðbólgum flýti í raun fyrir eyðileggingu liðanna. Því sé ráðlegt að nota einungis lyf í þessum flokki (NSAID) í skamman tíma í einu.
Heimildir: Vefsíða Dr. Murray og Lyfjaeftirlitið