Forsíða |
Innlent | Erlent | Íþróttir | Tækni | Fólk | 200 mílur | Smartland | Matur | | Fjölskyldan | Sporðaköst | Bílar | K100 | Ferðalög | Viðskipti | Blað dagsins
Innlent
Umfangsmiklar og vel heppnaðar formleifarannsóknir á Austfjörðum varpa nýju ljósi á landnám þar eystra og mögulega á Íslandi. Greinilegt er að mikið hefur verið umleikis bæði á bænum Firði og í Stöð. Ríkidæmi virðist hafa verið mikið í Firði sem var bær landnámsmannsins Bjólfs.
meira
Algengast er að laun framkvæmdastjóra sveitarfélaga, sveitarstjóra og bæjarstjóra, um allt land, séu á bilinu 1,4 til rúmlega tvær milljónir króna á mánuði.
meira
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar, segir rannsókn lögreglu á andláti tíu ára stúlku skýrast með hverjum deginum.
meira
Í fjárlagafrumvarpinu voru þau áform kynnt að séreignasparnaðarúrræðið yrði afnumið. Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra ítrekar í viðtali við ViðskiptaMoggann sem birt var í gær að hann hafi ekki boðað breytingarnar heldur hafi þær löngu verið ákveðnar.
meira
Helmingi færri íbúðir eru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu en sveitarfélög þar töldu sig geta byggt í húsnæðisáætlunum sínum.
meira
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur gert tillögu um það að Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, verði fulltrúi flokksins í nýrri Mannréttindastofnun.
meira
Kyrrðar- og bænastund vegna áfalla í samfélaginu verður haldin í Dómkirkjunni klukkan 18 í kvöld.
meira
Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt af sér varaþingmennsku fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi norður.
meira
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins segir það rannsóknarefni af hverju svo dýrt sé að búa á Islandi sem raun ber vitni. Hann vill fá erlenda sérfræðinga til að gera úttekt á því.
meira
Bæna- og samverustund verður haldin í Víkurkirkju í kvöld klukkan 21. Mun stundin fara fram á bæði ensku og íslensku.
meira
Tekjur af erlendum ferðamönnum á öðrum ársfjórðungi þessa árs námu tæplega 154 milljörðum króna samanborið við 160 milljarða á öðrum ársfjórðungi síðasta árs.
meira
Kristinn Már Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari í körfuknattleik, lést sl. föstudag á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni eftir veikindi, 79 ára að aldri.
meira
Quang Le segir að til hafi staðið að flytja úr lagernum í Sóltúni og að hann hafi kvartað undan aðstæðum þar við leigusalann. Þá finnst honum hann ekki hafa notið sannmælis hjá Heilbrigðiseftirlitinu.
meira
Nokkur hundruð einstaklingar tengjast skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi með einum eða öðrum hætti. Þetta kemur fram í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá árinu 2021 um skipulagða brotastarfsemi hér á landi.
meira
Bifreið var stöðvuð í akstri í Reykjavík og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann framvísaði ökuskírteini sem virtist ekki uppfylla öryggisþætti.
meira
Í dag verður vestlæg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu og skýjað með köflum, en suðvestan 8-15 m/s norðvestanlands undir hádegi, hvassast á Vestfjörðum. Lægir í kvöld. Víða verður bjartviðri, en dálitlar skúrir vestan til.
meira
Benedikt Sveinsson, lögmaður og athafnamaður í Garðabæ, lést á þriðjudagskvöld, 86 ára gamall. Benedikt fæddist í Reykjavík 31. júlí 1938 og ólst upp í húsi sem stóð á Laugavegi 18 til tíu ára aldurs, en þá flutti fjölskyldan í Hlíðarnar.
meira
Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna er hlynntur frekari virkjun orku í landinu, en andstaðan hverfandi, samkvæmt skoðanakönnun Gallup um umhverfismál, sem gerð var fyrir Samtök atvinnulífsins (SA).
meira
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir sjálfsagt að skoða það að semja við önnur ríki um að hýsa fanga með erlent ríkisfang sem hlotið hafa dóm á Íslandi.
meira
Markaðsviðburður Póstsins var haldin Silfurbergi í Hörpu í dag og var fjölsóttur. Viðburðinn sóttu verslunar- og fyrirtækjaeigendur til að viða að sér fróðleik um vænlegar leiðir til árangurs í markaðsmálum en á sérstök áhersla var lögð á jólatörnina sem er framundan.
meira
fleiri