Forsíða |
Innlent | Erlent | Íþróttir | Tækni | Fólk | 200 mílur | Smartland | Matur | | Fjölskyldan | Sporðaköst | Bílar | K100 | Ferðalög | Viðskipti | Blað dagsins
Innlent
Neytendastofa hefur sektað verslanirnar EG skrifstofuhúsgögn, Innréttingar og tæki og Kölski fyrir ófullnægjandi verðmerkingar.
meira
Þetta er í rauninni stakur atburður og spennulosun í tengslum við flekaskil, segir Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um jarðskjálftann í gærkvöldi í Brekknafjalli norðan við Hofsós, sem mældist 3,1 að stærð.
meira
Það er vel í lagt að láta sjávarútveginn greiða 33% af hagnaði af fiskveiðum í sérstakt veiðigjald að sögn SFS. Fyrirætlanir matvælaráðherra gætu fært hlutfallið í einhverjum tilvikum upp í 83%.
meira
Þetta var nú bara einn helvítis hlunkur, segir Finnur Sigurbjörnsson, íbúi á Hofsósi, um jarðskjálftann í gærkvöldi í Brekknafjalli norðan við Hofsós, sem mældist 3,1 að stærð. Segir hann skjálftann þó vera eins og fermingardreng miðað við Skagafjarðarskjálftann mikla frá 1963.
meira
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú vinnuslys sem varð í Árborg fyrr í dag.
meira
Það er sérstaklega mikilvægt að við tökum ekki þátt í að ýta undir sögusagnir á samfélagsmiðlum og að við hjálpum börnunum okkar að greina á milli hvað eru staðreyndir og hvað eru bara sögusagnir, segir séra Arna Ýrr Sigurðardóttir í samtali við mbl.is.
meira
Lilja Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarráðherra, segir að mál Yazans Tamimi muni fara í efnislega meðferð. Slíkt getur þó aðeins gerst ef honum verður ekki vísað úr landi innan tilskilins frests, sem rennur út á laugardag. Þetta hefur ekki komið fram í máli annarra ráðherra.
meira
Auðvitað er enginn sáttur við allt í þessum sáttmála en hins vegar held ég að sjálfstæðismenn almennt séu sammála um að það verður að halda áfram, segir Sandra Hlíf Ocares, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
meira
Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta leit að Illes Benedek Incze sem saknað hefur verið frá aðfaranótt sunnudags. Um áttatíu björgunarsveitar- og lögreglumenn hafa verið við leit í dag en hún hefur ekki borið árangur.
meira
Einhver merkilegasti fornleifauppgröftur síðari tíma er fornleifarannsóknin í Firði í Seyðisfirði. Ragnheiður Traustadóttir stjórnar uppgreftrinum og rannsóknum. Hún er gestur Dagmála í dag og greinir frá áður ónefndum grip sem fannst við uppgröftinn.
meira
Nærri tuttugu gráða hiti hefur mælst á Austurlandi í dag.
meira
Betur fór en á horfðist þegar hópur fólks virtist kominn í vandræði í Reynisfjöru fyrr í dag. Björgunarsveitir og lögregla sem voru við leit að manni sem er saknað varð fólksins viðvart og varaði það við yfirvofandi hættu.
meira
Sandra Hlíf Ocares, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem sat í borgarstjórn í dag í fjarveru Hildar Björnsdóttur, oddvita flokksins í Reykjavík, greiddi atkvæði með uppfærslu samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins á fundi borgarstjórnar í dag.
meira
Ekkert hefur enn spurst til Illes Benedek Incze, sem lögregla og björgunarsveitarfólk hefur leitað að í nótt og í fram eftir degi. Að sögn Brynju Sverrisdóttur, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi, eru um 80 manns við leit.
meira
Stúlkan sem fannst látin á sunnudagskvöld hét Kolfinna Eldey Sigurðardóttir. Hún var 10 ára og var búsett í Reykjavík.
meira
Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir ráðherra í ríkisstjórn keppast við að slá sig til riddara hvert á sínum forsendum vegna máls palestínska drengsins, Yazans Tamimi, sem átti að flytja af landi brott í gær.
meira
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að búið sé að fara yfir samskipti lögregluyfirvalda og heilbrigðisyfirvalda í aðdraganda þess að Yazan Tamimi var vakinn og fluttur brott af sjúkrastofnun að kvöldi sunnudags, og að þau virðist hafa verið í lagi.
meira
Ég er komin hérna til þess að styðja Yazan og hans mannréttindi sem barn. Hér er verið að þverbrjóta barnasáttmálann og hann [Yazan Tamimi] er eins og við vitum langveikt barn og búið að þvæla honum um á grimmilegan máta, segir Bryndís Ýrr Baldursdóttir, sem var einn af þeim um það bil 200 mótmælendum sem mættu fyrir utan fund ríkisstjórnarinnar í morgun.
meira
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hyggst setja á fót vinnu í ráðuneyti sínu til að marka mótvægisaðgerðir til að draga úr hávaða á Reykjavíkurflugvelli.
meira
Afleiðingar rangrar sjúkdómsgreiningar, van- og ofgreiningar, forflokkun í heilbrigðiskerfinu og almennt hvernig tryggja eigi öruggar sjúkdómagreiningar er meðal þess sem rætt verður um á málþingi um sjúklingaöryggi í dag.
meira
til baka
fleiri