Haraldur Örn - haus
Þú ert hér: Haraldur Örn > Fegurð á jökli
16. mars 2010

Fegurð á jökli

 Við erum hressir og kátir eftir að hafa náð 35 km á skíðagöngunni dag. Staðsetning í tjaldstað núna er N 64.27.496 og V 16.36.713. Við vorum á göngu í 7.5 klst. Hvíldir voru 1.5 klst. Alls 9 tímar í dag. Vindur var um 8 m/sek á suðaustan og mjög blint allan daginn þar til skyndilega snerist í sunnanátt og létti til undir kvöld. Færi var prýðilega gott og okkur leið vel á göngunni. Við eigum um 50 km eftir að jökuljaðri við Snæfell. Þegar létti til nú í kvöld sáum við Snæfell og Kverkfjöll snæviþakin og tignarleg. Öræfakyrrðin og fegurð jökulsins ríkir hér.