Haraldur Örn - haus
17. mars 2010

Gengum 33 km í blindu

Okkur gekk vel í dag. Gengum 33 km. Vindur var hægur af austri, blint allan daginn, él framan af og töluverð snjókoma síðdegis, mjög vægt frost. Staðarákvörðun N 64.32.997 og V 15.58.411. Við eigum eftir að ganga um 18 km að jökuljaðrinum ofan við Snæfell þannig að allt stefnir í að við ljúkum göngu á jökli á morgun. Þetta er góður félagsskapur og léttur andi í hópnum bæði á göngunni og í tjaldi.