Haraldur Örn - haus
18. mars 2010

Göngu yfir Vatnajökul lokið

Vorum snemma á fótum. Í dag gengum við í tveimur lotum þessa 18 km sem við áttum eftir að jökuljaðrinum. Veður var stillt og milt, ágætis útsýni yfir jökulinn en þoka yfir nálægum fjöllum þ.á.m. Snæfelli. Færið var gott og jökullinn ósprunginn. Við gengum um 8 km frá Jöklinum í átt til Snæfellsskála en þar kom vel búinn jeppi frá Egilsstöðum til móts við okkur eins og um var talað. Ferðin öll yfir jökulinn tók 3 heila daga og 2 hálfa. Þetta var sérstaklega skemmtileg ferð og ætla ég að útbúa nánari frásögn af henni síðar. Bestu kveðjur til allra sem hafa fylgst með okkur.